SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Jóna Guðbjörg Torfadóttir18. september 2026

"SPARKLE" BÆTIST VIÐ SKÁLDATALIÐ

Freyja “Sparkle” Möller hefur nú bæst við Skáldatalið. Hún er afar fjölhæf listakona og hefur fengist við skriftir, myndlist, uppistand og leiklist svo að eitthvað sé nefnt. Freyja hefur sent frá sér 12 verk sem hafa ýmist ratað á bók eða fjalirnar. Hún hefur hlotið verðlaun fyrir einleiki sína og leikritið Skammarþríhyrninginn en Freyja bæði lék í verkinu og tók þátt í handritsgerðinni. Þá fékk ljóðabók Freyju, Gríman: Grindr ljóð góðar viðtökur.

Hér má horfa á viðtal við Freyju

og hér er smá innlit í uppistand hennar