SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Steinunn Inga Óttarsdóttir10. janúar 2017

ENGIN MYND - Ljóð eftir Þóru Jónsdóttur

Hún dó úr tæringu í baðstofu frá manni og ungum börnum mælti svo fyrir að ljóð sín yrðu brennd Engin ljósmynd er til af henni að eigin ákvörðun Hún var talin skilningsgóð á fagurfræðilega hluti Hryggir trúðu henni fyrir sorgum Aldrei átti amma þín eldspýtur að kveikja upp í hlóðunum, sagði hann staddur í nýja eldhúsinu mínu Ég get ekki vitað hvernig kona hún var enda þótt ég beri nafn hennar Eitt sinn dreymdi mig mynd hennar á vegg Geisli féll á hana skáhallt skipti andlitinu í tvennt Ekkert sást utan hvít rákin Það segir mér: Hún er ekki mynd Hún er ljósrák og leyndarmál - - - Úr: Lesnætur Bls: 11 Ár: 1995 Staður: Reykjavík Útgefandi: Mýrarsel

 

Tengt efni