SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Þóra Jónsdóttir

Þóra Jónsdóttir er fædd 17. janúar 1925 á Bessastöðum á Álftanesi en fluttist á barnsaldri með fjölskyldu sinni að Laxamýri í Suður-Þingeyjarsýslu og ólst þar upp. Móðir hennar er Elín Vigfúsdóttir á Laxamýri, húsfreyja og skáld. 

Þóra nam við Héraðsskólann á Laugum í Reykjadal á árunum 1940 til 1942 og síðar við Menntaskólann á Akureyri þar sem hún lauk stúdentsprófi árið 1948. Þóra kenndi við Flensborgarskólann í Hafnarfirði veturinn 1948 til 1949 en hélt síðan til Kaupmannahafnar þar sem hún las bókmenntir við Hafnarháskóla frá 1949 til 1952. Eftir að hún kom aftur til Íslands fór Þóra í Kennaraskóla Íslands og lauk prófi þaðan árið1968. Þóra starfaði á Borgarbókasafni Reykjavíkur frá 1975 til 1982.

Tvennt var það í æsku og mótunarárum Þóru sem hlúði að hinni listrænu taug hennar, náttúran og ljóðalestur. Þessu lýsir hún í pistli frá 2001 sem finna má á vef bókmenntaborgarinnar Reykjavík. Fyrsta ljóðabók Þóru, Leit að tjaldstæði, kom út árið 1973, en síðan hefur hún sent frá sér fjölda ljóðabóka auk ljóðaþýðinga. Þá hafa komið út tvær bækur eftir Þóru með stuttum ljóðrænum, ævisögulegum prósatextum. Safnrit með ljóðum úr fyrstu sjö ljóðabókum Þóru kom út hjá bókaforlaginu Sölku haustið 2005 undir titilinum Landið í brjóstinu.

Sem ljóðskáld sver Þóra sig í ætt við módernista á borð við Hannes Pétursson og Þorstein frá Hamri. Sitthvað hefur  verið skrifað um ljóðlist Þóru og nefna má grein Úlfhildar Dagsdóttur frá 2002 sem finna má á vef bókmenntaborgarinnar Reykjavíkur og grein eftir Ilmi Dögg Gísladóttur um ástarljóð Þóru, í Lesbók Morgunblaðsins 2005 auk fjölda ritdóma.

Auk skáldskaparins hefur Þóra fengist við myndlist árum saman og á mörgum kápum bóka hennar eru hennar eigin málverk. Þóra er búsett í Reykjavík. Eiginmaður hennar var Páll Flygenring, ráðuneytisstjóri. Þau eiga þrjú börn.   


Ritaskrá

  • 2019  Sólardansinn [ljóðrænar örsögur]
  • 2013  Nokkur ljóð  
  • 2013  Elst milli hendinga
  • 2010  Hversdagsgæfa [ljóðrænar örsögur]
  • 2005  Landið í brjóstinu [safn fyrri ljóðabóka]
  • 2003  Einnota vegur
  • 2000  Far eftir hugsun
  • 1996  Ljósar hendur [ásamt Ágústínu Jónsdóttur og Vilborgu Dagbjartsdóttur)
  • 1995  Lesnætur
  • 1991  Línur í lófa
  • 1988  Á hvítri verönd
  • 1983  Höfðalag að hraðbraut
  • 1978  Horft í birtuna
  • 1975  Leiðin norður [Leiðin heim]
  • 1973  Leit að tjaldstæði

 

Verðlaun og viðurkenningar

  • 2000  Viðurkenning dómnefndar bókmenntaverðlauna Tómasar Guðmundssonar, fyrir Far eftir hugsun.
  • 1995  Viðurkenning úr Rithöfundasjóði Ríkisútvarpsins

 

Þýðingar

  • 1985  Augu í draumi. Ljóð eftir Agnetu Pleijel
  • 1996  Útópía eftir Wislawa Szymborska

 

Tengt efni