Magnea Þuríður Ingvarsdóttir∙28. mars 2026
HUGUR HAGYRÐINGS

LífiðIðu lífs fær enginn breyttæfast kostir slíkir.Þó við kveðjum eitt og eittáfram gleði ríkir.----Óspurð leidd í lífsins danslogans kveikur brennur.Hvergi fáum stuttan stans,stundarglasið rennur.Gildi vináttunnar:Það verður alltaf svo við leiðarlokað litlu skipta jarðargæðin bestu.Til að létta okkar þunga okmun einlæg vinarhugsun skipta mestu.Bjargey Kristrún Arnórsdóttir orti þessar stökur. Þær eru að finna í ljóðabók hennar ,,Vestfjarðarvísur" sem út kom árið 2007. Hún var fædd á Tindum í Geiradal 16. maí 1930. Foreldrar hennar voru Arnór Einarsson og Ragnheiður Grímsdóttir, bændur á Tindum.Bjargey var afburða snjall hagyrðingur og var virkur félagi í Kvæðamannafélaginu Iðunni. Eftir hana liggur allmikið safn ljóða, tækifæriskveðskapur og gamanvísur, og alvarlegri ljóð, erfiljóð og hátíðaljóð ort af ýmsu tilefni.Inn á Ísmús má lesa margar snjallar stökur og ljóð eftir Bjargeyju.Ísmús | Bjargey Arnórsdóttir
Veðurvísur Bjargeyjar.Ljósin á bæjunum loga,leiftrandi stjörnur um geim,Kyrrt er um víkur og voga,vetur á töfrandi heim.Hjarnið víðast hylur jörðhart er norðurbúum,en brátt við munum sjá í svörðá sumarið við trúum.Áin rennur, af sér spennir fjötra.Það er sól og það er vor,þeysöm gjóla hvetur spor.Sigla fyrir sólu ský,seint hún fær að skína,en austangolan unaðshlýyngir vanga mína.Gáska lifsins glöggt ég skilgælir sól við stráin.Vaknar sterk í vorsins ylvængjatakaþráin.Bjargey lést árið 2010
Bjargey var afburða snjall hagyrðingur og var virkur félagi í Kvæðamannafélaginu Iðunni. Eftir hana liggur allmikið safn ljóða, tækifæriskveðskapur og gamanvísur, og alvarlegri ljóð, erfiljóð og hátíðaljóð ort af ýmsu tilefni.Inn á Ísmús má lesa margar snjallar stökur og ljóð eftir Bjargeyju.