
Bjargey Kristrún Arnórsdóttir
Bjargey Arnórsdóttir fæddist á Tindum í Geiradal 16. maí 1930. Foreldrar hennar voru Arnór Einarsson og Ragnheiður Grímsdóttir, bændur á Tindum.
Bjargey ólst upp á Tindum, og átti heima þar þangað til hún flutti að Hofsstöðum með Ragnari manni sínum. Síðustu árin bjuggu þau í félagi við Arnór son sinn. Þegar þau fluttu frá Hofsstöðum fór hún að stunda vinnu í Reykjavík og víðar og var að mestu búsett þar síðustu árin.
Bjargey var afburða snjall hagyrðingur og var virkur félagi í Kvæðamannafélaginu Iðunni. Eftir hana liggur allmikið safn ljóða, tækifæriskveðskapur og gamanvísur, og alvarlegri ljóð, erfiljóð og hátíðaljóð ort af ýmsu tilefni. Þrjár bækur með kveðskap eftir hana hafa komið út, Vestfjarðavísur 2007, Brugðið á leik 2009, og Sláturvinnuvísur 2010. Einnig hafa birst ljóð eftir hana í bókum með úrvali ljóða, í blöðum og víðar.
Inn á Ísmús má lesa margar snjallar stökur og ljóð eftir Bjargeyju.
Bjargey lést árið 2010
Ritaskrá
2010 Sláturvinnuvísur
2009 Brugðið á leik
2007 Vestfjarðarvísur
