SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Magnea Þuríður Ingvarsdóttir 2. maí 2026

Til þín ung ég orti ljóð

Ljóðabókin ,,Til þín” 1962 er ein lítil perla í ljóðasafn íslenskra kvenna.
 
Hõfundur Valborg Bentsdóttir 1911-1991 frá Bíldudal var margt til lista lagt. Hún var kennari, ritstjóri, kvenréttindakona og margt fleira. Bókin sem er bæði frumleg og flott hefur að geyma smásõgur, teikningar og ljóð sem fjalla um ástina á einn eða annan máta.
 
Hér eru nokkur ljóð úr kaflanum Átján ljóð um þig og hina.

 
Til þín
 
Til þín ung ég orti ljóð,
en árin fyrna hverja glóð.
Nú vegi skilja fönn og fjöll
og fölnuð sumarblómin öll.
 
Þó má enn hin kyrru kveld
kanna minninganna eld.
Þegar birta dagsins dvín
í draumsins vin ég leita þín.
 
Draumur
 
Við drauminn um þig
má ég dvelja um sinn.
Þar til dagurinn rís
ertu dávaldur minn.
Gegnum skugganna tjald
lítil stjarna mér skín,
ungt og ógróið vor,
það er ástin til þín.
 
En það dagar of fljótt.
Ég á drauminn ei meir
Var það angursins vert,
sem þá óborið deyr?
Bíddu blekking um stund,
ég er barn þitt á ný.
Hvar er stjarnan, sem hvarf
bak við hversdagsins ský?
 
Þrjú ljóð um þig
 
Ein var slóð okkar
í votu grasi
bjarta nótt.
Morgunkyljan
þurrkaði döggina.
Ég finn aldrei 
framar 
þessi spor.
 
Í tunglsljósinu
komstu á móti mér
bjartur
eins og nýsnærinn.
Brautin til þín
var bein og breið.
Óstýrlát löngun
rak mig á ókunna stigu.
Bíddu - sagði ég
og beygði af leiðinni.
Nú er óbrúað djúpið
milli okkar.
Og ég komst ekki til þín.
Ég er ekki synd.
 
Og enn 
vitjaðir þú mín,
í morgunsárið,
þegar nóttin hafði horfið
með draumana á brott með sér.
Og þrárnar spunnu
geislandi símu
í sólskininu.
með ívafi minninganna
glitóf söknuðurinn
á þræði þá
mynd þína
í dagdraum minn.
 
Áhugaverð ljóð um ástina sem gott er að lesa í upphaf sumars þegar geisla sólar lífga allt við og ástin blómstrar eins og blómin. Eða hvað?
 
 
 

Tengt efni