SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Magnea Þuríður Ingvarsdóttir20. september 2026

SONNETTUSVEIGUR SIGRÚNAR ÁSTU

Eins og áður hefur komð fram hefur Sigrún Ásta Haraldsdóttir sent frá sér ljóðabókina Krákustígar, sonnettusveigur. Bók sem inniheldur 15 ljóð sem mynda ljóðasveig á bundinn í hátt sonnettunnar. Sonnettan er að sögn höfundar ljóð sem tengjast öll saman í eina heild. Þar segir ennfremur í upphafi bókarinnar að : 

Þetta bragarform er talið vera eitt hið flóknasta í ljóðlist vegna hinna ströngu tenginga sem gilda á milli erindanna. Helstu einkenni hennar eru: 

Samfléttun lína: Síðasta lína hverrar sonnettu er jafnframt fyrsta lina þeirra næstu. Hringtengingin: Lokalína 14 sonettunnar er jafnframt fyrsta lína þeirra fyrstu, þannig að hringnum er lokað. Meistarasonnettan (Bragarsveigur): Fimmtánda sonnettan er hápunktur verksins og er samsett út fyrstu línum allra hinna 14 sonnettanna í réttri röð.

Sonnettan er rakin til ítalskrar bragarháttar frá 13. öld. Okkar frægasta sonnetta er kvæðið ,,Nú andar suðri sæla vindum þýðum" eftir Jónas Hallgrímsson.

Sonnettan hennar Sigrúnar Ástu er kvennasaga, hún fjallar um lítinn stelpuanga sem fetar kræklóttan stíg tilverunnar og mætir allskonar áskorunum á leiðinni. En sagan hverfist um líf hennar sem fimlega víkur sér undan hýrum augum hins kynsins.

     Til hennar sveinar hýru renndu auga,
     þeir hófu mikinn sjarma upp að fýra 
     og ortu henni ástarbragi langa.
 
    Þótt ýnsir reyndu að sperra sig og spauga
    þá sporum sínum öllum kaus hún stýra.
    Hún valdi hvað vegi skyldi ganga.
 
Næsta sonettan hefst svo á síðustu línum úr síðustu sonnettu.
 
     Hún valdi hvað vegi skyldi ganga
     þótt vildu margir ástir hennar kveikja,
     sig upp vð hana aðrir þráðu að sleikja
     og inn á hana gjöfum reyndu að spranga.
 
en svo fellur hún að lokum fyrir einum því amor hefur tekið af henni völdin sem hvorki spyr um stað né stund.
 
Því Venus kom með vængi sína þanda
og veslings stelpukornið okkar tryllti
svo bera fór á bráðum hugarskekkjum.
 
Hún ætlað hafði ein og klár að standa
og ekki svara tungluliprum pilti,
en féll að lokum fyrir Amorshrekkjum.
 
Sá piltur reyndist svo vera listamannatýpa sem ekki nennti að vinna og svo fór sem fór. Stelpuanginn grét sitt gæfuleysi og burtu vildu úr strögli kjaga.
 
Síðasta sonnettan nefnist Meistarasonnetta en í henni er hápunktur verksins og er samsett úr fyrstu linum allra hinn 14 sonnettanna og þá í réttri röð.
 
Hér fjallað er um frískan stelpuanga.
Hún snareyg var og snotur þessi pía,
frá barnsaldri sig fjrjáls leit og fría,
hún valdi hvaða vegi skyldi ganga.
 
Systir höfundar Hallfríður Ólöf Haraldsdóttir sá um myndskreytingu. Léttar og skemmtilegar myndir sem fanga sonnettuna algerlega. 
 

 

Tengt efni