SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Sigrún Ásta Haraldsdóttir

Sigrún Ásta Haraldsdóttir fæddist á Blönduósi 5. júní 1953. Foreldrar hennar voru Elín Ólafsdóttir og Haraldur Karlsson. Fyrstu tíu ár ævinnar ólst hún upp á bænum Litladal í Svínavatnshreppi í Austur-Húnavatnssýslu en hefur eftir það átt heimili í Reykjavík. Hún starfaði nær allan starfsaldur sinn á Landspítalanum, lengst af á Heilbrigðis- og upplýsingatæknisviði.

Sigrún hefur tekið þátt í hagyrðingasamkomum og ljóð hennar og vísur hafa birtst víða, bæði í bókum og tímaritum t.d. Húnavöku, Són, Heima er best, Bændablaðinu, Stuðlabergi og ekki má gleyma Vísnahorni Morgunblaðsins. Einnig má finna skáldskap hennar í nokkrum bókum, má þar nefna Leir, Samtímarímur, Bestu limrurnar, Stafavísur, Bestu gamanvísurnar, Gamanvísnabókina og Limruveisluna.

Sigrún hefur sent frá sér tvær ljóðabækur; Hvítir veggir kom út árið 2015 og Krákustígar, sonnettusveigur árið 2026 sem hún gerði í samvinnu við systur sína Hallfríði Ólöfu Haraldsdóttur sem gerði myndverk sonnettunnar.


Ritaskrá

  • 2026   Krákustígar: sonnettusveigur, myndverk: Hallfríður Ólöf Haraldsdóttir
  • 2025   Samtímarímur (ásamt fleiri höfundum)
  • 2015   Hvítir veggir: ljóð