SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Magnea Þuríður Ingvarsdóttir∙27. september 2026

DAGSKAMMTAR

Ragnheiður Guðbjörg Hrafnkelsdóttir myndlistamaður og heimspekingur sendi frá sér litla bók fyrr á árinu sem inniheldur nokkur prósaljóð. Bókin heitir Dagskammtar og fjallar um upplifun og um leið heimspekilega sýn höfundar á hlutum sem verða á vegi hennar um götur borgarinnar.

Samkvæmt skilgreiningu úr bókmenntafræðinni eru prósaljóð ljóð í lausu máli og eiga uppruna sinn úr latínu, prorsa oratio og þýða má sem ,,ræða sem heldur áfram. Talaða er um að andstæða prósans sé ljóð í bundnu máli.

Á baksíðun bókarinnar segir frá því að flestir textanna tengjast ákveðum atvikum, eru hugleiðingar höfundar eða þankabrot.

Ljóð sem rata inn í hversdaginn er áhugaverð nálgun á því sem öðrum þætti ósköp venjulegur dagur. Hversdagslegir hlutir eins og ský eða gul blaðra birtist höfundi, eitthvað sem við hin tækjum ekki eftir á göngu okkar. Ragnheiður telur að kannski hafi verið barnaafmæli í götunni nýlega, hún sér auk þess sambyggð hús með mismunandi litum, ljósgrá, blá og áferð eins og múrkústað og skellótt hús, kallast á við gulu blöðruna sem hún sá í upphafi. Eitthvað sem er þarna lætur ímynduraflið hennar sjá bara annað. Skýin færast hægt og rólega í burtu, liðast um himinhvolfið á hægri siglingu en skellur svo á hornhimnunni, og smýgur inn um augunbotninn og ferðast eftir sjóntauginni til heilans. bls. 24

Við sem lesum prósaljóðið hennar Ragnheiðar um skýið og gulu blöðruna eigum auðvelt með að skilja og meðtaka það sem við þekkjum en það er annað mál þegar hlutirnir fara út fyrir það rými, eins og til dæmis þegar skýin lenda á hornhimnunni. Í hugrænni bókmenntafræði er talað um að ljóðin taki á fleiru en bara því sem við þekkjum, ljóðið hreyfir við ímyndumafli, skynjun og tilfinningum. 

Prósarnir leiða okkur á átt að einhverju öðru en við var að búast.

Áhugaverð bók sem gaman er að glugga í og það er ekki laust við að mér líði eins og ég hafi verið með henni á göngu um stræti borgarinnar og hlustað á hana tala um þessa hluti.

Ragnheiður nam heimspeki og myndlist í Reykjavík, Kaupmannhöfn, Amsterdam og New York.

 

 

Tengt efni