Ragnheiður Guðbjörg Hrafnkelsdóttir
Ragnheiður Guðbjörg Hrafnkelsdóttir er Reykvíkingur, búsett í Vesturbænum. Ragnheiður er með B.A gráðu í heimspeki frá Háskóla Íslands og stundaði nám í myndlist í Kaupmannahöfn, Amsterdam og New York þar sem hún lauk meistaragráðu frá Pratt Institute 1991. Hún hefur haldið fimm einkasýningar og tekið þátt í ýmsum samsýningum. Ragnheiður útskrifaðist með meistargráðu í ritlist 2025. Dagskammtar er fyrsta bók höfundar með eigin verkum. Árið 2015 sá Ragnheiður um útgáfu á kvæðaúrvali eftir ömmu sína, Guðrúnu Stefánsdóttur frá Fagraskógi, skáld og ritstjóra, og skrifaði í inngangi ágrip um líf og störf Guðrúnar.
Ritaskrá
2025 Dagskammtar
2015 Ljóð Guðrúnar Stefánsdóttir frá Fagraskógi