Birgitta Haukdal
Birgitta Brynjarsdóttir Haukdal er fædd 28. júlí 1979 á Húsavík.
Birgitta var í popphljómsveitinni Írafár og ein ástsælasta söngkona landsins en svo sneri sér að því að skrifa barnabækur fyrir yngsta aldurshópinn.
Fyrsta bók hennar heitir Lára lærir að hjóla og varð hún strax vinsæl og síðan hafa komið fleiri bækur um þessa lífsglöðu stelpu með Ljónsa-bangsann sinn.
Aðspurð um boðskap Láru-bókanna segir Birgitta: „Mér finnst skipta máli að persónurnar í bókunum séu góðar fyrirmyndir. Krakkar eiga að geta samsamað sig við Láru, vini hennar og fjölskyldu. Lára á að vera þeim góð fyrirmynd en enginn er fullkominn og hún getur verið óþekk og gerir mistök. Bækurnar lýsa venjulegu lífi, þetta eru sögur úr raunveruleikanum, eitthvað sem þeim fullorðnu finnst hversdagslegt en börnum finnst vera stórkostlegt ævintýri“ (DV, 3.11.2017).
Birgitta býr í Reykjavík, er gift og á tvö börn.
Mynd af Birgittu: Alchetron
Ritaskrá
- 2023 Lára missir tönn
- 2023 Lára fer á jólaball
- 2022 Hrekkjavaka með Láru
- 2022 Lára fer í útilegu
- 2021 Lára bakar
- 2021 Lára lærir á hljóðfæri
- 2021 Syngdu jólalög með Láru og Ljónsa
- 2020 Syngdu með Láru og Ljónsa
- 2020 Lára fer í leikhús
- 2019 Gamlárskvöld með Láru
- 2019 Lára fer í sveitina
- 2018 Lára fer til læknis
- 2018 Afmæli hjá Láru
- 2017 Lára
- 2017 Ljónsi
- 2017 Lára fer í sund
- 2017 Jól með Láru
- 2016 Lára fer á skíði
- 2016 Kósíkvöld með Láru
- 2015 Lára fer í flugvél
- 2015 Lára lærir að hjóla
Þýðingar
- 2022 Lara goes swimming (Abigail Charlotte Cooper þýddi á ensku)
- 2022 Lara visits the farm (Abigail Charlotte Cooper þýddi á ensku)