Guðbjörg Hermannsdóttir
Guðbjörg Hermannsdóttir var fædd 10. febrúar árið 1917 og ólst upp í stórum systkinahópi á Bakka við Húsavík.
Guðbjörg giftist Braga Guðjónssyni klæðskerameistara (1917–1983). Þau bjuggu alla tíð á Akureyri og eignuðust fimm börn.
Meðal barna Guðbjargar er Snjólaug Bragadóttir, rithöfundur og þýðandi, sem sló í gegn sem ástarsagnahöfundur á áttunda og níunda áratug liðinnar aldar. Ef til vill hefur velgengni dótturinnar á ritvellinum hvatt Guðbjörgu til að feta í fótspor hennar því hún hóf að skrifa ástarsögur þegar sex bækur höfðu komið út eftir Snjólaugu. Alls komu út fimm skáldsögur eftir Guðbjörgu.
Guðbjörg lést 1997.
Sögur Guðbjargar eru nú aðgengilegar á Storytel.
Ritaskrá
- 1982 Afbrot og ástir
- 1981 Ást og dagar
- 1980 Víða liggja leiðir
- 1979 Krókaleiðir ástarinnar
- 1978 Allir þrá að elska