SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Steinunn Inga Óttarsdóttir 9. september 2026

SJÁLFSHATURSGEYMSLUR HEIMSINS? Um MÆÐRUN

Smásagnasafnið Mæðrun - Sýnisbók eftir Auði Önnu Magnúsdóttur er skemmtilega mögnuð lesning sem kemur gleðilega á óvart. Titillinn er óvenjulegur og vekur strax athygli. Þetta eru stórgóðar 12 smásögur sem allar snúast um mæður á einn eða annan veg. Kafað er djúpt í það hvað það er að vera móðir og ýmsum spurningum varpað fram. Á ég dóttur kærastans míns? Er allt í lagi að eiga ímynduð börn? Eru nútímakonur "sjálfshatursgeymslur heimsins"? Á barmi taugaáfalls?

"...Maðurinn minn er, þú skilur, honum líður ekki nógu vel og hann, hér, er ekki með vinnu í bili. Hann hjálpar lítið til heima og við eigum stórt hús, skuldsett. Það þarf að sinna húsinu, sinna börnunum, lesa með þeim, læra, hlusta á daginn þeirra, æfa á píanóið, elda fyrir þau...vaska upp, þrífa, þvo bílinn. Garðurinn. Ræktin, klippingin, vaxið, vinnuferðir, feisið, insta og alt það. Svo er það mamma, vinkonurnar, allir þurfa sitt og allir horfa..." (11).

Smásagan um keppnina Frú góð móðir Ísland 2026 er t.d. bæði fyndin og flugbeitt. Keppnisreglurnar eru mjög stífar og inntökuferlið afar strangt. Verklegu keppnisgreinarnar eru sannarlega  kunnuglegar og alls ekki auðveldar, t.d. þrif á ís og kexmylsnu úr barnabílstól og að setja saman kojur úr Ikea. 

Og sagan af gædinum, transbarninu í grunnskólanum, reisunni um Milano til München, Endurfundir... allt skarpar og áleitnar sögur. Hér er svo sannarlega ferskur höfundur að gera góða hluti með sinni fyrstu bók.

Á sögunum er ýmislegt form og margs konar umgjörð; sagan um keppnina er t.d. eins og leiðbeiningabæklingur, Endurfundir er í leikritsformi, ein saga er ævintýri, Tvær hálfar er absúrd. Höfundur er hvergi banginn, kemur sínum mikilvæga boðskap á framfæri og ræður vel við öll form.  

Auður Önnu Magnúsdóttir er framkvæmdastjóri Kvenréttindafélags Íslands. Hún hefur lokið doktorsprófi í lífefnafræði frá Stokkhólmsháskóla og vann m.a. við rannsóknir og stjórnun. Hún gengdi stöðu framkvæmdastjóra Landverndar í fimm og hálft ár þar til hún hóf störf hjá Kvenréttindafélaginu. Hún er einnig stofnandi og fyrsti formaður Samtaka kvenna í vísindum og þekkir jafnréttismál vel. Hún er eldheitur femínisti og náttúruverndarsinni hefur birt skorinorðar greinar víða um sín baráttumál. 

Auður gefur bókina út sjálf. Didda Flygenring hannaði bókarkápuna með mynd sem vísar í nokkrar sagnanna (letur aftan á er of dauft) og bókinni fylgir laglegt bókamerki.

Stórskáldið Steinunn Sigurðardóttir segir í káputexta um Mæðrun

"Sögurnar í Mæðrun eru stórhlægilegar, átakanlegar og allt þar á milli. Í einni lendir yfirkeyrð húsmóðir í fáheyrðum vandræðum við að kaupa sér spítt og í annarri elur móðir brjóstabarnið sitt á geðdeild. Hér eins og oftar kveðast á depurð og kostulegheit. Látið þessar ofurnæmu og spennandi meistarasögur ekki fram hjá ykkur fara, þær koma hressilega á óvart og opna glugga út í nýjar veraldir."

Hressandi og skemmtileg lesning - létt íronína, bullandi femínismi og beittur húmor. Góða skemmtun!