SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Soffía Auður Birgisdóttir∙ 5. október 2026

GLÍMAN VIÐ ELLI KELLINGU: TRÖNURNAR FLJÚGA SUÐUR eftir Lísu Ridzén

 

Hvað er það sem við flest viljum verða en ekkert okkar vill vera? Djúp sannindi eru fólgin í svarinu við þessari þekktu gátu: Gömul. Þótt við viljum flest ná háum aldri getur það reynst okkur erfitt að takast á við fylgifiska ellinnar; hrörnandi líkama og minni sem svíkur. Ekki er ástandið heldur auðvelt fyrir aðstandendur þeirra sem eldast og veikjast, oft eru þeir ráðalausir í aðra röndina og þjakaðir af samviskubiti í hina. Kannski er þetta sérlega erfitt og flókið í nútímasamfélögum þar sem líf margra virðist snúast um flest annað en að hlúa að fjölskyldunni, sér í lagi um vinnuna sem stunduð er utan heimilis. Um þetta, meðal annars, fjallar frumraun hinnar sænsku Lísu Ridzén á bókmenntasviðinu, en bókin kom út í Svíþjóð 2024 og hefur síðan farið 'sigurför um heiminn' og er nú komin út í íslenskri þýðingu Heimis Pálssonar.

Sagan segir frá Bo sem er tæplega níræður og býr ennþá heima, ásamt hundinum sínum Sixten. Konan hans, Friðrika, er með alzheimer og þekkir hvorki eiginmann sinn lengur né einkason þeirra, Hans. Hún hefur verið lögð inn á hjúkrunarheimili og Bo vill helst ekki heimsækja hana, enda eru heimsóknirnar raun fyrir þau bæði. Þótt Bo búi sjálfur heima er hann háður þjónustu heimahjúkrunar sem vitjar hans fjórum sinnum á dag, gefur honum að borða, baðar hann, lítur til með honum og skráir niður í dagbókina stöðuna á honum og ýmsa minnispunkta. Mikið af stússi heimaþjónustunnar er Bo algjörlega á móti skapi og auðvitað líkar honum misvel við starfsfólkið sem hefur mismunandi skilning á þörfum hans og mismikla þolinmæði; helst vill hann fá að vera í friði með hundinum sínum og minningunum sem renna oftar en ekki saman við daglegan veruleika nú-sins í huga Bo.

Um þetta snúast helstu átakalínur frásagnarinnar; Hans, sonur Bo, hefur miklar áhyggjur af föður sínum - og hundinum. Honum finnst ljóst að Bo sé ekki lengur hæfur til að hugsa um hundinn, fara með hann í nauðsynlega göngutúra og sinna öðrum þörfum hans - og að sjálfsögðu hefur hann mikið til síns máls. En Sixten er mikilvægasti félagsskapur Bo og hann fyllist reiði og angist yfir þeirri tilhugsun að hundurinn verði tekinn af heimilinu. Fyrsta setning bókarinnar vísar til tilfinninga Bo í garð sonar síns út af þessu máli: „Ég læt mig stundum dreyma um að gera hann arflausan, sjá til þess að hann fái ekkert" (8). Í kjölfarið hugsar hann: „Hvað eins og strákskrattinn viti eiginlega" - og er þar að tala um karlmann sem kominn er hátt á sextugsaldur.

Feðgasambandið myndar einn af burðarþráðum frásagnarinnar - og reyndar er sá þráður tvöfaldur því það er ekki bara samband Bo við son sinn sem um ræðir heldur einnig samband Bo við sinn eigin föður; orðtakið 'eitruð karlmennska' kemur þar upp í hugann, sér í lagi á það við í tilviki föður Bo sem beitir bæði harðræði og þögn óspart í uppeldinu. Þögn fyrri kynslóða - sérstaklega karlmanna - um tilfinningar sínar er viðfangsefni sem víða dúkkar upp í samtímabókmenntum, jafnt á Íslandi sem annars staðar, (nefna má nýja ljóðabók, Þagnarfár eftir Garibaldi, sem einmitt fjallar um hvernig þögn karla eitrar út frá sér í gegnum kynslóðir og viðheldur sárum sem eiga erfitt með að gróa).

Hugsanlega til að vega upp á móti þessari neikvæðu lýsingu á 'karlmennsku' kynnir höfundur til sögunnar allt annars konar karlmann, Ture, sem er besti vinur Bo til áratuga. Ture er samkynhneigður, ljúfur og skemmtilegur og lýsingin á vináttu þeirra Bo er áhugaverð í ýmsu tilliti, bæði á persónulegu sviði og samfélagslegu. Bo telur að á milli þeirra ríki fullkominn trúnaður en við andlát Ture kemur í ljós að hann hefur kosið að halda einum mikilvægasta þættinum í sínu lífi frá Bo. Þótt það sé kannski klisja að 'mjúki´maðurinn sé hommi þá mynda Ture og faðir Bo (sem hann nefnir einfaldlega "Kallinn" en réttara væri að tala um 'Karlhelvítið') sterka andstæðu í lífi Bo. Sjálfur er hann þarna einhvers staðar á milli, kannski nær sínum eigin föður en hann gerir sér grein fyrir; getur greinilega ekki flúið sitt uppeldi. Bo er oft harður og tilfinningalega lokaður gagnvart sínum eigin syni og endurtekur í ýmsu þá hegðun sem hann fyrirlítur föður sinn fyrir. En hann virðist hins vegar ekki kunna neina leið til annars konar framkomu í garð Hans. Gagnvart sonardóttur sinni, Ellinóru, er hann hinsvegar blíður og góður og hjónabandi sínu og Friðriku lýsir hann sem ástríku, þótt ekki fari á milli mála að spenna hefur oft ríkt á milli hjónanna út af framkomu Bo við Hans. Bo hefur jafnframt íhaldssamar skoðanir á hlutverkum kynjanna og einnig það veldur árekstrum á milli föður og sonar. Þegar Hans fer í fæðingarorlof langar Bo til að láta ýmislegt flakka, en augnaráð eiginkonunnar stöðvar hann. En hann getur sagt hvað sem er við hundinn: „Alminilegur karlmaður vinnur fyrir konu sinni svo hún geti séð um barnið, flóknara er það nú ekki, segi ég við Sixtenog læt augnlokin síga" (149).

Þar sem frásögnin er að mestu leyti lögð í munn og huga Bo sjálfs kemst lesandi fljótt að því að hann á í vanda með að tjá tilfinningar sínar þótt hann gjarna vildi. Frásögnin er víða fleyguð setningum sem gefa til kynna að hugsanir Bo í garð Hans er oft hlýjar og jafnvel skilningsríkar en hann kann ekki að tjá þær eða kemur orðunum ekki frá sér: „Ég ræð ekkert við hvaða orð koma út úr mér" (124). 

Að mörgu leyti er frásögnin af ellihrörnun Bo vægðarlaus og erfið aflestrar. Hann er stöðugt hóstandi og hrækjandi upp hroða með erfiðsmunum; hann getur ekki lengur stjórnað þvaglátum en vill alls ekki nota bleyjuna sem starfsmenn heimahjúkrunar setja á hann; hann vill ekki láta baða sig, finnst ekki skipta máli þótt vond lykt sé af honum inni á hans eigin heimili; hefur litla sem enga matarlyst - og svo mætti lengi telja. Frásögnin hefst upp úr miðjum maí og lýkur um miðjan október, spannar sem sagt aðeins fimm síðustu mánuðina í lífi gamla mannsins sem eru honum og öðrum erfiðir, bæði líkamlega og andlega. En þetta er aðeins ytri tími verksins því minningar Bo ná allt aftur til barnæsku og innri tími bókarinnar nær því yfir heilt æviskeið. Í frásögninni blandast minningar Bo stöðugt saman við 'raunveruleikann', hann ver stórum hluta sólarhringsins í hálfgerðu minningamóki liggjandi í rúminu við hlið hundsins. Höfundur hefur mjög gott vald á þessari frásagnartækni; frásögnin flæðir vel á milli tímasviða og tíðarandinn fyrr og nú kemst vel til skila.

Bókinni mætti líka lýsa sem frásögn í mörgum lögum; hér eru sagðar margar sögur sem vekja upp alls konar tilfinningar: samúð og pirring, meðlíðan og reiði, gleði og sorg. Ljúfsár er lýsingin af Bo sem helst vill liggja í rúminu með Sixten sér við hlið og boxið með sjali eiginkonunnar sem enn geymir ilminn af henni innan seilingar. Hann þarf hjálp til að opna boxið, bólgnir fingurnir láta ekki að stjórn, svo hann geti dregið í sig ilminn. Boxið má þó ekki vera of lengi opið í einu svo ilmurinn rjúki ekki út í veður og vind.

Öðrum þræði er verkið lýsing á því hvernig gamli maðurinn nær vissri sátt við sjálfan sig, son sinn og líf sitt, með því að minnast og endurmeta líf sitt og framkomu. Hann öðlast, þrátt fyrir allt, ákveðna innsýn inn í samfélagslegar breytingar og sér hvernig þær geta leitt til betri líðan einstaklinga sem saman mynda fjölskyldu. Gott dæmi er þegar hann veltir fyrir sér innileika sonardóttur sinnar og hvers vegna hún geti óhrædd tjáð ást sína:

 

Ég skil ekki hvers vegna sonardóttir okkar varð svona ólík pabba sínum. Kjanski snýst það um Sonju, að hún hafi gert eitthvað fyrir Ellinóru sem við gerðum ekki fyrir Hans. (172)

 

Eða þegar hann horfist í augu við sársauka sonar síns:

 

Augnaráð Kallsins kallaði fram í mér sama sársauka og mér finnst ég sjá í andliti Hans. Ég loka munninum og reyni að gleypa kökkinn í hálsinum. (179)

 

Bókinn lýkur með andláti gamla mannsins og um það lesum við í dagbók heimahjúkrunar:

 

Bo fékk hægt og friðsælt andlát. Yfir andlátinu er friður og hann hefur engar þrautir. Hönd hans hvílir á Sixten sem liggur hjá honum. Ég kveiki á kerti og hringi í Hans. / Ingrid

 

Heimir Pálsson er framúrskarandi þýðandi úr sænsku, hann bjó um áraraðir í Svíþjóð og þekkir innviði sænskunnar vel. Heimir hefur hlotið tilnefningar til Íslensku þýðingarverðlaunanna oftar en einu sinni. Eigi að síður vil ég halda því fram að textinn hefði þurft betri yfirlestur því á ýmsum stöðum hnýtur lesandi um íslenskun orða, eins og til dæmir orðið hjólagrind þar sem augljóslega er verið að tala um það sem á íslensku kallast göngugrind (hjólagrind er grind sem reiðhjólum er lagt í). Einnig virkar það undarlega á undirritaða að tala um að slípa ljá (reyndar er á öðrum stað talað um að brýna ljáinn), og að eiga mat í frostinu (28), en ekki í frystinum, setja mat í frost en ekki að frysta hann. Hér kann þó að vera að minningar Bo framkalli þetta orðalag, að það heyri til tíma áður en ískápar voru á hverju heimili? Þá kemur nýponsúpa fyrir á einum stað (65) en talað um næpusúpu annars staðar. Einnig velti ég fyrir mér orðalagi á borð við: „Að Malin frátekinni" (75), þar sem merkingin er augljóslega: Að Malin undaskilinni, og „Hann verkaði vera í betra skapi" (118) sem virkar mjög 'sænskulegt' á mig. Einnig fannst mér fremur erfitt að lesa fyrningar eins og: kjanski, hjarna, fjeretigi og fjegur (er þýðandi kannski að reyna að koma á framfæri einhverri mállýsku?) og styttingar í orðalagi á borð við: oltið (stytting á svolítið, geri ég ráð fyrir, er reyndar soltið á bls. 124). En þetta eru smáatriði sem skipta litlu máli í heildarsamhenginu, sem er að bókin er mögnuð og þýðing góð. Það verður áhugavert að fylgjast með Lisu Ridzén í framtíðinni, alla vega fyrir þá sem áhuga hafa á norrænum samtímabókmenntum.

 

Þessi ritdómur er skrifaður fyrir og frumbirtur á Skáld.is með stuðningi frá Hagþenki

 

 

Tengt efni