
Steinunn Ásmundsdóttir
Steinunn Ásmundsdóttir er fædd árið 1966 í Reykjavík.
Ferðalög innanlands og vítt um veröldina, ljóðagerð, blaðamennska, starf að náttúruvernd og landvarsla voru helstu viðfangsefni hennar fram undir þrítugsaldurinn.
Steinunn flutti til Egilsstaða árið 1996 og bjó þar næstu rúmlega tuttugu árin, stofnaði fjölskyldu og starfaði sem blaðamaður og ljósmyndari Morgunblaðsins á Austurlandi í hartnær áratug og sem ritstjóri héraðsfréttablaðsins Austurgluggans um skeið.
Steinunn dró sig fyrir nokkrum árum í hlé frá fjölmiðlavinnu og gekkst skáldskapnum á hönd að nýju. Hún er búsett í Reykjavík.
Ljóð, sögur og greinar eftir Steinunni hafa birst í safnritum, tímaritum og blöðum og þættir/innslög á ljósvaka.
Steinunn hefur verið félagi í Rithöfundasambandi Íslands frá árinu 1992.
Ritaskrá
- 2022 Ástarsaga
- 2019 Í senn dropi og haf
- 2018 Manneskjusaga
- 2018 Áratök tímans
- 2017 Hin blíða angist
- 2016 Yrkir.is
- 1996 Hús á heiðinni
- 1992 Dísyrði
- 1989 Einleikur á regnboga
Tilnefningar
- 2021 Til Íslensku hljóðbókaverðlaunanna, Storytel Awards, fyrir Manneskjusögu
Heimasíða
https://www.yrkir.is/index.php