SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Yrsa Þöll Gylfadóttir

Yrsa Þöll Gylfadóttir er fædd árið 1982 í Reykjavík og eftir fimm ára búsetu í Kanada ólst hún að mestu upp í Garðabæ.

Yrsa Þöll lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð árið 2002 og flutti í kjölfarið til Frakklands til að nema franskar bókmenntir og málvísindi, fyrst við Michel de Montaigne háskóla í Bordeaux og loks við Svarta skóla í París. Síðar lauk hún meistaraprófi í frönskum fræðum frá Háskóla Íslands, kennsluréttindum á framhaldsskólastigi og prófi frá Leiðsöguskóla Íslands.

Samhliða skrifum hefur Yrsa Þöll að mestu unnið sem leiðsögumaður og kennari en hefur einnig fengist við túlkun og þýðingar, dagskrárgerð í útvarpi, sem og sölu og kennslu á borðspilum.

Yrsa Þöll hefur skrifað skáldsögur og barnabækur. Á haustdögum 2018 voru fluttar þrjár einræður eftir hana á baráttufundi Kvennafrís 2018, af jafnmörgum leikkonum sem sögðu sögu þriggja verkakvenna á ólíkum tímum. Ljóðið „Árblik“ samdi Yrsa Þöll við kórverk Þórðar Magnússonar og var það flutt á fullveldisdaginn af Söngfjelaginu, bæði í Alþingishúsinu og í Hörpu.

Yrsa Þöll býr í Reykjavík ásamt eiginmanni sínum og þremur börnum.  

 


Ritaskrá

  • 2023  Rambó er týndur
  • 2023  Bekkurinn minn 7: Bumba er best 
  • 2022  Jólaleikritið. Bekkurinn minn 6
  • 2022  Varúlfurinn. Bekkurinn minn 5
  • 2022  Hjólahetjan. Bekkurinn minn 4
  • 2021  Lús! Bekkurinn minn 3
  • 2020  Strendingar. Fjölskyldulíf í sjö töktum
  • 2020  Geggjað ósanngjarnt! Bekkurinn minn 2
  • 2020  Prumpusamlokan. Bekkurinn minn 1  
  • 2017  Móðurlífið, blönduð tækni
  • 2010  Tregðulögmálið

 

Tengt efni