![](https://skald.is/rails/active_storage/representations/eyJfcmFpbHMiOnsibWVzc2FnZSI6IkJBaHBBaDhOIiwiZXhwIjpudWxsLCJwdXIiOiJibG9iX2lkIn19--1c3872da892962a70a106b1ff6fe0262285b4d95/eyJfcmFpbHMiOnsibWVzc2FnZSI6IkJBaDdDem9VYzJGdGNHeHBibWRmWm1GamRHOXlTU0lLTkRveU9qQUdPZ1pGVkRvTWNYVmhiR2wwZVdsYU9ncHpkSEpwY0ZRNkRtbHVkR1Z5YkdGalpVa2lDVXBRUlVjR093WlVPZzlqYjJ4dmNuTndZV05sU1NJSmMxSkhRZ1k3QmxRNkRHTnZiblpsY25SSklnaHFjR2NHT3daVSIsImV4cCI6bnVsbCwicHVyIjoidmFyaWF0aW9uIn19--ab11f33cd0e3125b70ad0873c3efbc7224ec12c0/91c302_ecdf7ea304094728b935d1af78a87feb~mv2.png)
Bára Bjargs
Bryndís Jónsdóttir Bachmann (1886-1973) sendi frá sér eina ljóðabók, Vor í Skálholtsstað, undir skáldanafninu Bára Bjargs, árið 1950. Hún var gift Grími Ásgrímssyni, f. 13.4. 1880, d. 29.8. 1973, steinhöggvara í Reykjavík. Bryndís var systir Hallgríms ljósameistara, föður Helgu Bachmann leikkonu. Bryndís var dóttir Jóns Bachmann, bónda í Steinsholti, bróður Borgþórs, föður leikkvennanna, Önnu, Þóru og Emelíu Borg.
Hún lét eftir sig handrit og ljóð og skjöl, t.d. Í hug mér vakir saga. Störf og ævi Gríms Ásgrímssonar 13. apríl 1880-29. ágúst 1973 og Ævi Hallfríðar Einarsdóttur (1859-1937) sem var móðir hennar. Skjalasafn Bryndísar er aðgengilegt hjá Kvennasögusafninu.
Ritaskrá
- 1950 Vor að Skálholtsstað