![](https://skald.is/rails/active_storage/representations/eyJfcmFpbHMiOnsibWVzc2FnZSI6IkJBaHBBaVlOIiwiZXhwIjpudWxsLCJwdXIiOiJibG9iX2lkIn19--e12a58b521acc5aca1d32f2196c42ced5cf50459/eyJfcmFpbHMiOnsibWVzc2FnZSI6IkJBaDdDem9VYzJGdGNHeHBibWRmWm1GamRHOXlTU0lLTkRveU9qQUdPZ1pGVkRvTWNYVmhiR2wwZVdsYU9ncHpkSEpwY0ZRNkRtbHVkR1Z5YkdGalpVa2lDVXBRUlVjR093WlVPZzlqYjJ4dmNuTndZV05sU1NJSmMxSkhRZ1k3QmxRNkRHTnZiblpsY25RdyIsImV4cCI6bnVsbCwicHVyIjoidmFyaWF0aW9uIn19--025048454440a4ffbe1bfbd2ffec4bffda87ad8b/06196c_9df75a24f6e44edd8cd88968ec753ae0~mv2.jpg)
Ewa Marcinek
Ewa Marcinek er fædd í Póllandi en hefur verið búsett á Íslandi frá 2013.
Hún nam skapandi skrif og menningarfræði við Háskólann í Wroclaw og síðar myndlist við Myndlistarskólann í Reykjavík.
Ewa stofnaði, ásamt Pálínu Jónsdóttur leikstjóra, leikfélagið Reykjavík Ensemble. Sýningin Ísland pólerað (Polishing Iceland), sem sett var upp í Tjarnarbíói 2020 og vakti mikla athygli, byggði á samnefndu og sjálfsævisögulegu smásagnasafni Ewu um reynsluna af því að vera pólskur innflytjandi á Íslandi og þær áskoranir sem henni fylgja. Handrit leikritsins birtist í Syrpu: sýnisbók sviðshandrita
Bók Ewu, Pólerað Ísland, kom út 2022.
Ewa var hugvekjuhöfundur Tímarits Máls og menningar 2021 og vöktu pistlar hennar verðskuldaða athygli.
Ritaskrá
- 2022 Ísland pólerað
- 2021 Pólífónía af erlendum uppruna (ásamt 14 öðrum höfundum)
- 2020 Syrpa: Sýnisrit sviðshandrita 2009-2020 (Polishing Iceland)
Heimasíða
www.ewamarcinek.com