SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Ingibjörg Friðgeirsdóttir

Ingibjörg Friðgeirsdóttir var frá Hofsstöðum, Álftaneshreppi, hún fæddist þann 14. október 1906 í Borgarnesi.

Foreldrar hennar voru þau Sigurjón Friðgeir Sveinbjarnarson og Ingibjörg Lífgjarnsdóttir en móðir hennar lést aðeins tólf dögum eftir fæðingu Ingibjargar og ólst hún upp hjá fósturforeldrum sínum, Ólöfu Guðnýju Sveinbjarnardóttur og Gesti Guðmundssyni á Ytri Rauðamel í Eyjahreppi. Ólöf Guðný var föðursystir Ingibjargar.

Ingibjörg giftist tvítug að aldri Friðjóni Jónssyni bónda á Hofstöðum í Álftaneshreppi 1895 og eignuðust þau fjögur börn. Ingibjörg bjó á Hofstöðum frá 1927 til dauðadags. Hún starfaði mikið í félagsmálum, t.a.m. hjá hestamannafélaginu Faxa, Kvenfélagi Álftaneshrepps og Byggðasafni Borgarfjarðar.

Ingibjörg var mikil hestakona og í riti Brodda Jóhannessonar Faxa, um íslenska hestinn, er birt ritgerð eftir hana og í kynningu segir Broddi að Ingibjörg  sé "hestelskari og hestfærari en almennt gerist". Í grein Ingibjargar, sem hefur yfirskriftina "Brá hún af stalli stjórnbitluðum" segir hún að hestar og bækur hafi verið þau fyrirbæri sem hafi fangað hug hennar á æskutíð.

Ingibjörg var skáldmælt og ljóð lágu henni létt á tungu og orti hún og flutti ljóð við ýmis tækifæri. Þá var hún afbragðs upplesari. Ljóð eftir hana hafa birst í blöðum, tímaritum og safnritum.

Finna má ljóð eftir Ingibjörgu á vefnum Ísmús sem og í safnritinu Þá rigndi blómum. Ljóð borgfiskra kvenna.

Ingibjörg lést 19. apríl 1998.

 

Heimildir
Minningargrein eftir Bjarna Valtý Guðjónsson í Morgunblaðinu 1. maí 1998
Morgunblaðið 28. arpíl 1998.

Ritaskrá

  • 2014  Borgfirðingabók (ásamt fleirum)
  • 1991  Þá rigndi blómum (ásamt fleirum)

 

Tengt efni