SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Magnea Þuríður Ingvarsdóttir28. febrúar 2026

VINAR MINNI VERÐUR MÉR, VART ÚR MINNI SKAFIÐ...

Ingibjörg Friðgeirsdóttir frá Höfstöðum í Álftaneshreppi er skáld dagsins. Við fögnum henni líka sem nýjustu viðbótinni á skald.is. Lengi er von á einni.

Hún var fædd árið 1906 og eftir hana liggja ljóð víða á blöðum og tímaritum.

Hún orti þessar fleygu stökur sem finna má inn á Ísmús.

Að lokaþætti líður senn,
loksins vætt til stranda.
Í góðri sætt við guð og menn
get ég hætt að anda.

Örlögunum ofurseld,
ágjöf marga hlotið,
og við stolinn augnaeld
yls og birtu notið.

Við gæðing fríðan gleð minn hug
úr greip þótt skríði taumar.
Vetrar kvíða vísa á bug
vorsins blíðu draumar.

Vinar minni verður mér
vart úr minni skafið.
Allt sem minnir á þig er
ástúð minni vafið.

 

Ingibjörg lést árið 1998

kv

Magnea

 

 

Tengt efni