SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Sæunn Gísladóttir

Sæunn Gísladóttir er fædd 4. júní árið 1993 í Reykjavík.

Sæunn er með MA gráðu í Applied Economics frá University of St Andrews og MA gráðu í Development Studies frá Institute of Development Studies við University of Sussex. Sæunn býr á Siglufirði en hefur búið og starfað víða um heim, meðal annars í London, París, Gana og Rússlandi. Hún hefur starfað við rannsóknir um árabil, meðal annars á sviðum byggðaþróunar og jafnréttismála. Hún starfaði áður sem blaðamaður og ráðgjafi í þróunarsamvinnu.

Sæunn gaf út fyrstu skáldsögu sína Kúnstpásu árið 2025. Hún þýddi jafnframt bókina Ósýnilegar konur eftir Caroline Criado Perez sem kom út árið 2021.


Ritaskrá

2025 Kúnstpása

Þýðingar

2021 Ósýnilegar konur afhjúpun gagnahlutdrægni í heimi hönnuðum fyrir karla (þýðing á fræðibók)

Tengt efni