ÓSÝNILEGAR KONUR OG KÚNSTPÁSA

Skáldkona dagsins er Sæunn Gísladóttir, f. 1993 og bætist hún nú í sístækkandi skáldatal vort.
Sæunn gaf út fyrstu skáldsögu sína Kúnstpásu árið 2025. Hún þýddi jafnframt bókina Ósýnilegar konur eftir Caroline Criado Perez sem kom út árið 2021.
Kúnstpása er vel skrifuð og notaleg bók. Tvennum sögum fer fram í bókinni: Heimsborgarinn Sóley er nýútskrifaður hljómsveitarstjóri á framabraut í útlöndum. En þegar heimsfaraldur geisar og öllum tónleikahúsum Evrópu er skellt í lás samþykkir hún að koma heim og reka bókabúð afa síns sumarlangt í heillandi smábæ á hjara veraldar. Og ef þessi óvænta kúnstpása skapaði ekki nógu mikla óreiðu í lífi Sóleyjar, bæta kynnin af leiðsögumanninum Óskari sannarlega ekki úr skák. Annar þráður er spunninn í verkið: Um miðja síðustu öld stígur unga ekkjan Sigríður af skipsfjöl í sama smábæ. Hún ætlar að opna verslun í karlaveldi með mótlætinu sem því fylgir. Hún á þó eftir að komast að því að konur eru konum bestar og að það er alltaf ljós við enda ganganna. Saman fléttast þessir þræðir haglega saman.
Vonandi verður samt engin kúnstpása hjá þessari ungu skáldkonu, hún er sannarlega efnileg.


