SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Helga Soffía Þorgilsdóttir

Helga Soffía Þorgilsdóttir fæddist 19. nóvember 1896 í Knarrarhöfn í Hvammssveit í Dalasýslu. 

Foreldrar hennar voru þau Þorgils Friðriksson, bóndi og kennari fæddur 1860-1953 og Halldóra Ingibjörg Sigmundsdóttir fædd 1866-1909. Helga giftist Þorsteini Árnóri Arnórsson skipsstjóra, ekkjumanni með 5 börn og gekk hún börnunum í móðurstað.

Helga lauk kennaraprófi árið 1919 og sótti sér handavinnu og teiknikennslu í Kaupmannahöfn árið 1927. Þá tók hún kennarapróf frá Vadstena í Svíþjóð árið 1935.

Helga starfaði við farkennslu víða í þorpum landsins m.a. fyrst um sinn í Fljótshlíðinni á árunum 191-1921. Hún var heimilskennari í Bjarnarhöfn, Höfn í Hornafirði. Þá starfaði hún við baðvörslu í Miðbæjarskóla Reykjavíkur árið 1922-1923 og kenndi við Barnaskólann á Stokkseyri 1923-1924. Helga var skólastjóri barnaskólans á Húsatóftum á Skeiðum 1924-1930 og kennari við Miðbæjarskólann 1939-1946. Helga var kennari við Melaskóla frá 1946 og yfirkennari þar frá 1946 til starfsloka.

Helga starfaði mikið að félagsmálum og sat m.a í stjórn kvenfélags Hvítabandsins og sat  í sjúkrhúsráði í fjögur ár.

Helga var sæmd riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorði árið 1976.

Helga gaf út ljóðabókina ,,Úr handraðanum" árið 1973 ásamt systur sinni Steinunni Þorgilsdóttur

Hún lést árið 1996.


Ritaskrá

  • 1973  Úr handraðanum: ljóð og stökur

 

Tengt efni