SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Steinunn Þorgilsdóttir

Steinunn Þorgilsdóttir húsfreyja á Breiðabólstað á Fellsströnd í Dalasýslu. Hún fæddist þann 12. júní 1892 í Knarrarhöfn í Hvammssveit í Dalasýslu.

Foreldrar hennar voru þau Þorgils Friðriksson bóndi og kennari og Halldóra Ingibjörg Sigmundsdóttir. Steinunn var ein af fjórtán systkinum. Þegar Steinunn var 17. ára gömul andaðist móðir þeirra aðeins fjörtíu og þriggja ára að aldri og kom það í hlut Steinunnar að annast um systkinin sín ásamt föður.

Steinunn fór til náms í fjórða bekk Kvennaskólans i Reykjavík haustið 1913 og útskrifaðist með burtfararpróf vorið 1914. Eftir nám sitt í Kvennaskólanum varð hún kennari í nokkra vetur við farskólann í Hvammssveit og síðar í Fellastrandar- og Klofningsskólahéraði. Þá tók hún börn og unglinga á heimili sitt til kennslu, ekki síst eftir að börn hennar voru farin að heima. 

Steinunn tók mikinn þátt í félagsmálum, hún var ein af stofnfélögum í Ungmennafélaginu Auði djúpúðgu í Hvammssveit og tók hún virkan þátt í störfum þess. Þá gerðist hún félagi í Kvenfélaginu ,,Hvöt" á Fellströnd og varð fljótt formaður og gegndi hún því starfi í 44 ár. Steinunn sat í stjórn sambands breiðfirskra kvenna í mörg ár.

Steinunn var í hópi þeirra fimm, er tóku sæti í skólanefnd húsmæðraskólan á Staðarfelli árið 1939 og var þar til dauðadags. Síðasta fundinn sat hún í ágúst árið sem hún lést.  Hún var auk þess prófdómari í Staðarfellsskóla frá árinu 1927 er hann tók fyrst til starfa fram til síðast skólaárs 1975-1976 er skólinn hætti sem húsmæðraskóli. Steinunn var mjög áhugasöm um störf skólans og harmaði það að skólinn skyldi hætta störfum.

Árið 1918 giftist hún Þórði Kristjánssyni frá Breiðabólstað á Fellströnd og bjuggu þau þar allan sinn búskap. Þau eignuðust 6 börn.

Steinunn orti talsvert af ljóðum og vísum. Hún gaf út í samstarfi við systur sína Helgu S. Þorgilsdóttur ljóðabókina ,,Úr handraðanum" árið 1973.

Steinunn var bæði gáfuð og hagmælt og hún var sæmd fálkaorðu fyrir störf sín að félags og kennslumálum í Dalasýslu.

Heimild.: https://timarit.is/page/3590997#page/n19/mode/2up

Skessuhorn - 25. tölublað (17.06.2015) - Tímarit.is

Efni eftir Steinunni er að finna inni á Ísmús .https://ismus.is/einstaklingar/1000463?sida=1

Steinunn lést árið 1984.


Ritaskrá

1973  Úr handraðanum, ljóð og stökur