
Kristbjörg Freydís Steingrímsdóttir
Kristbjörg Freydís Steingrímsdóttir fæddist í Nesi í Aðaldal 21. september 1931. Hún lést á Hvammi, dvalarheimili aldraðra á Húsavík, 23. október 2020.
Foreldrar hennar voru Sigríður Vilhelmína Pétursdóttir, f. 13. mars 1899, d. 1. febrúar 1984, og Steingrímur Sigurgeir Baldvinsson, f. 29. október 1893, d. 11. júlí 1968.
Systur Kristbjargar voru Jóhanna Álfheiður, f. 20. ágúst 1920, d. 25. mars 2002, og tvíburasystirin Arndís Björg, f. 21. september 1931, d. 11. janúar 2004. Eftirlifandi bróðir þeirra er Pétur, f. 14. desember 1929.
Kristbjörg lauk landsprófi frá Laugum í Reykjadal 1950 og stundaði nám í lýðháskóla í Katarineberg í Svíþjóð 1950-1951 og Húsmæðraskólanum á Laugum 1953-1954. Hún var góður námsmaður og tungumálanám lá vel fyrir henni. Kristbjörg talaði og las sænsku og dönsku og tók stúdentspróf í ensku í fjarnámi um sjötugt.
Ritaskrá
2019 Döggslóð í grasi
2011 Systrarím