SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Nína Ólafsdóttir

Nína Ólafsdóttir er fædd 1986 í Reykjavík. Hún lauk Bachelor námi í líffræði frá Háskóla Íslands árið 2013 og meistaranámi í sjávar- og vatnalíffræði frá Háskólanum á Hólum og Háskólasetrinu á Svalbarða árið 2016.

Að námi loknu hóf Nína störf við rannsóknir á Veiðimálastofnun, sem sameinaðist síðar Hafrannsóknastofnun. Þar starfaði hún sem starfsmaður á Ferskvatnssviði í Reykjavík og síðar á Botnsjávarsviði á Snæfellsnesi. Meðfram námi og rannsóknum hefur hún sinnt náttúruleiðsögn á Íslandi og heimskautasvæðum, Svalbarða, Suðurskautinu, Grænlandi og Kanada.

Árið 2022 hlaut Nína Nýræktarstyrk Miðstöðvar íslenskra bókmennta fyrir handritið að sinni fyrstu skáldsögu Þú sem ert á jörðu. Skáldsagan kom út hjá Forlaginu 11. september 2025.

Nína heitir fullu nafni Jónína Herdís Ólafsdóttir en hefur kvittað undir skáldskapinn með gælunafni sínu. Í dag er hún búsett á Akureyri ásamt eiginmanni og syni þeirra.


Ritaskrá

  • 2025  Þú sem ert á jörðu

 

Verðlaun og viðurkenningar

  • 2025  Viðurkenning bóksala fyrir Þú sem ert á jörðu (2. sæti)
  • 2025  Þú sem ert á jörðu valin Besta Frumraun og Besta skáldsaga ársins hjá Morgunblaðinu
  • 2022  Nýræktarstyrkur fyrir handritið Þú sem ert á jörðu.

 

Tengt efni