BÓK NÍNU SÆTIR TÍÐINDUM
Frumraun Nínu Ólafsdóttur, Þú sem ert á jörðu, hefur vakið óvenju mikla athygli. Bókin kom út í september 2025 og seldist fyrsta upplag upp fyrir jólin. Í kjölfarið var hún endurprentuð og er nú þriðja prentun komin í dreifingu.
„Það sætir tíðindum þegar nýliði á ritvellinum uppsker jafnmikið lof og athygli lesenda og gagnrýnenda og Nína Ólafsdóttir með frumraun sinni Þú sem ert á jörðu. Móttökur fóru fram úr okkar björtustu vonum og bókin heldur greinilega áfram að heilla lesendur enda höfum við þegar prentað þrjú upplög,“ segir Hólmfríður Matthíasdóttir, útgefandi Forlagsins.
Dómar og viðtökur gagnrýnenda hafa vafalaust átt þátt í velgengni þessarar firnasterku bókar. Í samantekt útgáfuársins 2025 útnefndi Morgunblaðið bókina bæði bestu skáldsögu ársins og bestu frumraun ársins. Og hún hreppti anmað sætið í verðlaunum bóksala.
Þú sem ert á jörðu, hefur einnig vakið verðskuldaða athygli erlendis. Að sögn umboðskrifstofunnar Reykjavík Literary Agency hefur bókin nú verið seld til átta landa; Noregs, Danmerkur, Tékklands, Bretlands, Ungverjalands, Slóveníu og til hins spænskumælandi heims, auk Frakklands þar sem útgefendur yfirbuðu hver annan í baráttu sinni um réttinn.
„Það er verulega ánægjulegt að upplifa svo mikinn spenning fyrir höfundi eins og Nínu Ólafsdóttur, sem er að stíga sín fyrstu skref sem rithöfundur en á svo sannarlega framtíðina fyrir sér, bæði hér á Íslandi og erlendis,“ segir Stella Soffía Jóhannesdóttir hjá Reykjavík Literary Agency og bætir því við að verið sé enn að semja um útgáfuréttinn í fleiri löndum.
(Fréttatilkynning frá Forlaginu)
Nína er með mastersgráðu í sjávar- og vatnalíffræði frá Háskólanum á Hólum og mastersnámið stundaði hún á Svalbarða. Eftir útskrift hóf hún störf við ferskvatnsrannsóknir hjá Veiðimálastofnun sem seinna sameinaðist Hafrannsóknarstofnun og vann þar í mörg ár. Hún bjó lengi á Ólafsvík og starfaði þar við botnsjávarrannsóknir ásamt manninum sínum, Jóhanni Garðari Þorbjörnssyni. Nú búa þau á Akureyri ásamt syninum Heiðari Blika.
„Vísindastörfin eru að baki í bili, en núna hefur Nína ákveðið að helga sig ritstörfunum. Það voru þó vísindastörfin sem kveiktu neista í gömlum draumi um að skrifa bók, það var þar sem Nína fann sína rödd á ritvellinum” segir Nína m.a. í viðtali við Akureyri.net.
Mynd af Nínu: Forlagið