
Anne Carson
(Í vinnslu)
Anne Patricia Carson fæddist 21. júní 1950 í Toronto í Kanada og ólst upp í nokkrum kanadískum smábæjum.
Hún er með tvöfaldan ríkisborgararétt, kanadískan og íslenskan, sem hún fékk í apríl 2022. Hún býr hluta ársins á Íslandi en Anne og eiginmaður hennar, Robert Currie eiga íbúð í Reykjavík.
Anne Carson er mikil bókmennta- og tungumálamanneskja, bókmenntafræðingur, doktor í forn-grísku og klassískum bókmenntum, ljóðskáld, greina- og pistlahöfundur, þýðandi, kennari, fræðimaður.
Í skrifum sínum hefur Anne Carson blandað saman ólíkum bókmenntaformum. Hún þykir eitt merkasta og frumlegasta skáld samtímans, fer ævinlega ótroðnar slóðir í verkum sínum sem eru á mörkum ljóðlistar, prósa, þýðinga og bókmenntahefðarinnar.
Anne Carson hefur tekið virkan þátt í íslensku bókmenntalífi og viðburðum og átt í skapandi samtali við íslenska höfunda og listafólk. Benda má á viðtal sem Kristín Ómarsdóttir tók við hana og birtist í Tímariti Máls og menningar, 3. hefti 2018, með yfirskriftinni „Ég er höfðinglega venjuleg“.
Carson hlaut Vigdísarverðlaunin 2023, verðlaun sem íslensk stjórnvöld, Háskóli Íslands og Vigdísarstofnun veita árlega einstaklingi sem brotið hefur blað með störfum sínum í þágu tungumála, menningar og þýðingastarfs.
Í umsögn Nóbelsverðlaunanefndarinnar segir að Anne Carson hljóti verðlaunin fyrir djarft og hugvitssamlegt höfundarverk sem í fjörugu samspili við klassíska hefð hefur skapað nýtt form fyrir samtímabókmenntir.
Ritaskrá
(Í vinnslu)
- 2025 The Gender of Sound
- 2024 Wrong Norma
- 2021 H of H Playbook (About Herakles by Euripides, illustrated by Carson)
- 2021 The Trojan Women: A Comic
- 2019 Norma Jeane Baker of Troy: a version of Euripiedes´ Helen
- 2018 Vör/Lip: naumt skömmtuð sonnettusyrpa/A Mean Sonnet Sequence, þýðandi Ingibjörg Sigurjónsdóttir
- 2018 The Mile-Long Opera: A Biography of 7 O'Clock
- 2016 Float
- 2015 Short talks
- 2014 The Albertine Workout
- 2013 Nay Rather ("Variations on the Right to Remain Silent")
- 2013 Red doc (followup on Autobiography of Red)
- 2012 Antigonick (Sophokles)
- 2010 Nox
- 2005 Decreation : poetry, essays, opera
- 2003 The Mirror of Simple Souls: An Opera Installation (Libretto)
- 2001 The Beauty of the Husband: A Fictional Essay in 29 Tangos
- 2000 Men in the Off Hours
- 1999 Economy of the Unlost (Reading Simonides of Keos with Paul Celan)
- 1998 Autobiography of Red: A Novel in Verse
- 1998 Glass and God
- 1995 Plainwater: Essays and Poetry
- 1995 Glass, Irony, and God
- 1992 Short talks
- 1986 Eros the Bittersweet: An Essay (byggt á doktorsritgerð Carson)
- 1984 Canicula di Anna (ljóð)
- 1981 Odi et Amo Ergo Sum: "I Hate and I Love, Therefore I Am" (doktorsritgerð)
Verðlaun og viðurkenningar
(Í vinnslu)
- 2026 Nóbelsverðlaun í bókmenntum
- 2025 Zbigniew Herbert International Literary Award
- 2025 Paris Review Hadada Prize for lifetime achievement
- 2023 Vigdísarverðlaunin
- 2021 PEN/Nabokov Award for Achievement in International Literature
- 2020 Princess of Asturias Award for Literature
- 2020 Governor General's Literary Award for Norma Jeane Baker of Troy
- 2019 Manuel Acuña International Poetry Prize
- 2016 Blue Metropolis International Literary Grand Prize for lifetime achievement
- 2016 Griffin Poetry Prize for Red Doc> (Canadian winner)
- 2012 Criticos Prize (London Hellenic Prize) for Antigonick
- 2010 PEN Award for Poetry in Translation for An Oresteia
- 2001 QWF Award – A. M. Klein Prize for Poetry for The Beauty of the Husband
- 2001 T.S. Eliot verðlaunin fyrir The Beauty of the Huband
- 2001 Los Angeles Times Book Prize for Poetry for The Beauty of the Husband
Þýðingar
Íslenskar þýðingar á verkum Anne Carson
- 2025 Albertine-æfingarnar, þýðandi Ragnar Helgi Ólafsson
- 2018 Vör/Lip: naumt skömmtuð sonnettusyrpa/A Mean Sonnet Sequence, þýðandi Ingibjörg Sigurjónsdóttir
Þýðingar úr forngrísku á íslensku eftir Anne Carson
- 2015 Bakkhai eftir Euripides
- 2014 Antigone eftir Sophokles
- 2014 Iphigenia Among the Taurians eftir Euripides
- 2009 An Oresteia: Agamemnon by Aiskhylos, Elektra by Sophokles, Orestes by Euripides
- 2006 Grief Lessons: Fjögur leikrit eftir Euripides
- 2002 If Not, Winter: Fragments eftir Sappho
- 2001 Electra eftir Sophokles
