Soffía Auður Birgisdóttir∙ 8. október 2026
ANNE CARSON: NÓBELSHÖFUNDUR með íslenskan ríkisborgarétt.

Anne Carson var í dag útnefnd til Nóbelsverðlaunanna sem veitt verða við hátíðlega athöfn í Stokkhólmi í desember.
Það er svo sannarlega gleðiefni, því hún er frábær höfundur sem lýtur engum reglum og fer sínar eigin fagurfræðilegu leiðir.
Þótt það sé kannski fulldjarft að halda því fram að Anne Carson sé íslenskt skáld - því ekki skrifar hún á íslensku - þá er hún búsett á Íslandi stóran hluta ársins og er með íslenskan ríkisborgarétt.
Skáld.is lætur því sitt ekki eftir liggja og hefur bætt henni í Skáldatalið.


