
Friðrika Benónýsdóttir
Friðrika er fædd á Húsavík 1956 og alin upp í Reykjadal í Þingeyjarsýslu. Hún á tvær dætur og tvo dóttursyni. Friðrika lauk stúdentspróf frá MÍ 1981og stundaði nám í almennri bókmenntafræði við HÍ 1982-1988.
Friðrika hefur sinnt margvíslegum ritstörfum og blaðamennsku á ýmsum miðlum, s.s. Morgunblaðinu, Heimsmynd, Rás 1, Fréttablaðinu, Fréttatímanum, Stundinni, Gay Iceland og Mannlífi. Meðfram blaðamennskunni hefur hún verið bókmenntagagnrýnandi á þessum miðlum og meðal annars í fjögur ár í hópi gagnrýnenda Kiljunnar á RÚV. Auk þess starfaði hún sem prófarkalesari á Fréttablaðinu frá 2008-2010 og var menningarritstjóri blaðsins 2013-2015.
Fyrsta verk Friðriku á prenti var ljóðabókin Steinfuglar (1992) sem hún gaf út sjálf. Eitt þekktasta verk hennar er líklega ævisaga Ástu Sigurðardóttur, Minn hlátur er sorg (1992). Nýjasta skáldverk hennar frumsamið er Vályndi (2017), hér segir Friðrika frá efni bókarinnar og tilurð. Fyrir hana var Friðrika tilnefnd til Rauðu hrafnsfjaðrarinnar fyrir bestu kynslífslýsingu ársins. Þá hefur Friðrika einnig lagt stund á þýðingar.
Ritaskrá
- 2017 Vályndi, skáldsaga
- 2017 Eldheit ástarbréf, safn ástarbréfa frá ýmsum tímum
- 1997 Nema ástin, skáldsaga
- 1992 Minn hlátur er sorg, ævisaga Ástu Sigurðardóttur
- 1992 Steinfuglar, ljóðabók
Verðlaun og viðurkenningar
- 2018 Konan í glugganum, eftir A.J. Finn. Tilnefnd til Ísnálarinnar 2018 sem besta þýdda glæpasagan
- 2017 Vályndi, skáldsaga. Tilnefning til Rauðu hrafnsfjaðrarinnar fyrir bestu kynlífslýsingu.
Þýðingar
- 2019 Svört perla, skáldsaga eftir Lizu Marklund
- 2019 Silfurvegurinn, skáldsaga eftir Stinu Jackson
- 2018 Konan í glugganum, eftir A.J. Finn. Tilnefnd til Ísnálarinnar 2018 sem besta þýdda glæpasagan