SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Steinunn Inga Óttarsdóttir13. september 2023

DRAUGAGANGUR Í SMÁRALIND

Ný bók eftir Brynhildi Þórarinsdóttur (f. 1970) er komin út hjá Forlaginu. Smáralindar-móri er mergjuð saga fyrir lesendur sem kjósa spennu og dálítinn óhugnað!

Vinirnir Flóki og Patti laumast í skjóli myrkurs inn á lokað byggingarsvæði í Kópavogi, en þar er verið að reisa risastóra verslunarmiðstöð. Skyndilega er Patti horfinn, eins og jörðin hafi gleypt hann. Eftir þetta kvöld verður ekkert eins og áður.

Ári síðar er Lotta með vinkonum sínum í nýopnaðri Smáralind þegar hún tekur allt í einu á rás og týnist líka. Hvað varð eiginlega um hana?

Sögur um draugagang í verslunarmiðstöðinni magnast, sumir sjá þar dularfullar verur, strák og stelpu, og þann 10. október á hverju ári, á afmæli Smáralindar, fer eitthvað undarlegt á stjá.

Brynhildur Þórarinsdóttir býr á Akureyri. Hún hefur skrifað fjölda bóka fyrir börn og unglinga og meðal annars hlotið Norrænu barnabókaverðlaunin og Fjöruverðlaunin. 

Myndlýsingar í bókinni eru mjög flottar, eftir Elías Rúna.

 

 

Tengt efni