Soffía Auður Birgisdóttir∙ 7. desember 2023
ESTER HILMARSDÓTTIR KOMIN Í SKÁLDATALIÐ
Ester Hilmarsdóttir var ein þeirra þriggja höfunda sem tilnefnd var til Fjöruverðlaunanna í fyrradag - í flokki fagurbókmennta. Ester hlaut tilnefningu fyrir fyrstu útgefnu bók sína, ljóðabókina Fegurðin í flæðinu, en í vikunni birtist ritdómur um bókina hér á Skáld.is
Við óskum henni til hamingju með glæsilegt upphaf á rithöfundaferilnum og bjóðum hana velkomna í Skáldatalið okkar.