SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Soffía Auður Birgisdóttir 9. apríl 2024

ÁSTRÍÐUR, FRELSISÞRÁ OG HARMUR. UM KONUR Í BÓKMENNTUM

Föstudaginn 12. apríl verður haldið spennandi málþing á vegum Heimspekistofnunar og Bókmenntafræðistofnunar Háskóla Íslands með yfirskriftinni: „Guð forði mér frá smáást.“ Anna Karenina, Frú Bovary, Effí Briest og Alda Ívarsen í Tímaþjófinum.
 
Málþingið er haldið í stofu 101 á Háskólatorgi og hefst kl. 14:00 og stendur til 16:00. Þar munu rithöfundar, þýðendur og fræðimenn fjalla um bókmenntaverk þar sem konur eru í aðalhlutverkum, innlend og erlend verk. Í kynningu segir:
 
 
 
Á málþinginu velta þýðendur, greinendur og höfundur fyrir sér ástríðum, frelsisþrá og harmi söguhetja sem stranda á skerjum siðferðis síns samtíma, eigin tálsýna og þrár. Hvernig geta örlög þessara söguhetja hreyft við okkur til að hugsa um skilyrði og möguleika ástríðna og ástar á okkar eigin tímum?
 
 
Yfirskrift málþingsins GUÐ FORÐI MÉR FRÁ SMÁÁST er tilvitnun í Öldu Ívarssen í Tímaþjófi Steinunnar Sigurðardóttur og þær Effi Briest, Anna Karenina og Emma Bovary hefðu áreiðanlega tekið undir með henni!
 
 
Dagskráin er eftirfarandi:
 
Tímaþjófurinn
Steinunn Sigurðardóttir: Öldu hafnað
Alda Björk Valdimarsdóttir: „Ég gekk á vatninu í augunum á þér“
 
Effi Briest
María Elísabet Bragadóttir: Hvernig er hægt að lifa sig inn í Effí Briest?
Arthúr Björgvin Bollason: Óborinn heimur í djúpinu
 
Anna Karenina
Rebekka Þráinsdóttir: „Og ljósið slokknaði að eilífu“: Eigingjörn og tortímandi ást í Önnu Karenínu.
 
Frú Bovary
Dagný Kristjánsdóttir: Úr eldinum í öskuna: Um miklar ástir kvenna í bókmenntum
Pétur Gunnarsson: „Þessi bók drepur mig!“

 

Tengt efni