SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Steinunn Inga Óttarsdóttir19. júní 2024

TIL HAMINGJU MEÐ 19. JÚNÍ

Kvenréttindadagurinn er í dag, 19. júní. Dagurinn er baráttudagur íslenskra kvenna sem minnast þess þegar Kristján X. konungur skrifaði undir lög sem veittu konum yfir 40 ára kosningarétt.

Í tilefni dagsins er vert að birta enn og aftur ljóðið Við Þjóðveginn eftir skáldkonuna Sigríði Einars frá Munaðarnesi (1893-1973).

Til hamingju með daginn!

 

UM ÞJÓÐVEGINN

Um þjóðveginn fóru fáeinar konur sem veltu úr grýttum vegi steinum.

Um þjóðveginn fóru fleiri konur, sem fundu gimsteina grafna í sandinn.

Og fjöldi kvenna fór um veginn, þá fleygðu ambáttir fjötrum og tötrum.

Þúsundir kvenna um þjóðveginn fóru, sem lögðu hornsteina að háum sölum.

Þær lögðu hornsteina að hælum, skólum, ruddu brautir og björgum lyftu.

Nú mynda fylkingu milljónir kvenna um alla þjóðvegi allra landa

í baráttu fyrir frelsi, réttlæti, friði og samúð í fegurri heimi.

 

Tengt efni