Jóna Guðbjörg Torfadóttir∙28. ágúst 2024
KONA SEM GAT BARN
Í gær birtist afar áhugavert og skemmtilegt viðtal við Soffíu Auði Birgisdóttur bókmenntafræðing á Samstöðinni. Þar ræðir hún við Gunnar Smára Egilsson um Guðrúnu Sveinbjarnardóttur, dóttur Sveinbjörns Egilssonar, sem var trúlega intersex.
Soffía Auður hefur rannsakað sögu Guðrúnar um árabil og hyggst jafnvel gefa hana út á bók en hér má lesa grein hennar um Guðrúnu.