SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Soffía Auður Birgisdóttir19. mars 2025

DOKTORSRITGERÐ INGIBJARGAR EYÞÓRSDÓTTUR

 

Síðastliðinn fimmtudag, 13. mars, varði Ingibjörg Eyþórsdóttir doktorsritgerð við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Ritgerðin ber yfirskriftina Sögur af hægaloftinu: Konur og ofbeldi í íslenskum sagnadönsum og fjallar um sagnadansa sem eru varðveittir á Íslandi í handritum frá 17.–19. öld, þar sem konur eru oftast miðlægar eða nálægt miðju atburða. Ofbeldi er fyrirferðarmikið umfjöllunarefni og birtist í samskiptum karla og kvenna og milli karla í átökum um konur. Kvæðin eru greind eftir skilgreindum frásagnarliðum þar sem nánar er kafað í ofbeldið. Þótt ofbeldið beinist oft að konum í byrjun eru þær ekki alltaf þögul fórnarlömb heldur grípa gjarnan til hefnda og sögusamúðin er þeim oftast hliðholl. Kvæðin eru sett í samhengi við aðrar frásögugreinar, við samfélagslegan veruleika og breytilegan lagaramma á löngum tíma og eru skoðuð sem hluti kvennamenningar þar sem athugað er hvaða hlutverki þau geti hafa gegnt í lífi þeirra kvenna sem varðveittu kvæðin. 

Ingibjörg Eyþórsdóttir lauk BA-prófi frá Tónlistardeild Listaháskóla Íslands með áherslu á íslenska tónlistarsögu og MA prófi í íslenskum fræðum frá Háskóla Íslands. Áður hafði hún lokið prófi frá Myndlistar- og handíðaskóla Íslands.

Doktorsritgerðin var unnin undir leiðsögn Aðalheiðar Guðmundsdóttur, prófessors í íslenskum bókmenntum fyrri alda við Háskóla Íslands. Einnig voru í doktorsnefnd Auður Magnúsdóttir, dósent í sagnfræði við Gautaborgarháskóla og Þórunn Sigurðardóttir, rannsóknarprófessor emeritus við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Andmælendur við vörnina voru Margrét Eggertsdóttir, rannsóknarprófessor við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, og Vésteinn Ólason, prófessor emeritus við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. 

Við óskum Ingibjörgu hjartanlega til hamingju með doktorsnafnbótina og vonum að þetta spennandi viðfangsefni komi út á bók fyrr en síðar.

Ingibjörg hefur leyft okkur að birta ágrip ritgerðarinnar sem finna má undir flokknum greinar.

Tengt efni