SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Steinunn Inga Óttarsdóttir20. maí 2025

ÞÖKKUM ÞÓRU LJÓÐIN GÓÐ

Sunnudaginn 18. maí  á Degi ljóðsins efndi skald.is til ljóðadagskrár til heiðurs Þóru Jónsdóttur, skáldkonu, sem náði tíræðisaldri á árinu
 
Viðburðurinn var í Gunnarshúsi við Dyngjuveg og boðið var upp á nýbakaðar vöfflur og kaffi í blíðskaparveðri. Okkur til mikillar gleði heiðraði Þóra okkur með nærveru sinni.
 
Soffía Auður flutti inngangsorð, kynnti vefinn okkar og las sitt uppáhaldsljóð eftir Þóru. Þá fluttu Elín dóttir Þóru nokkur ljóð, Steinunn Inga, Anna Lára, Sigurlín Bjarney, Jóna Guðbjörg, Magnea Þuríður og Anton Helgi lásu öll ljóð úr bókum Þóru við góðar undirtektir. Gestir gerðu sér gott af veitingunum og áttu gott spjall um list, ljóð og líf þennan fagra og heita sumardag. Takk öll fyrir komuna og kærar þakkir Þóra fyrir ljóðin þín á langri ævi.
 
Á myndinni er ritstjórn skald.is ásamt Þóru Jónsdóttur skáldkonu. Steinunni Ingu vantar á myndina! Fleiri myndir eru á facebook-síðu skald.is
 

 

 

Tengt efni