SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Steinunn Inga Óttarsdóttir23. maí 2025

FJÁRKÚGUN FYRIR BYRJENDUR - Hefnd Diddu Morthens

Sigríður Pétursdóttir bar sigur úr býtum í árlegu handritasamkeppninni Nýjar raddir 2025. er þetta í áttunda skipti sem keppnin er haldin. Í dómnefnd sitja Silja Aðalsteinsdóttir, rithöfundur og ritstjóri, Atli Bollason bókmenntafræðingur og Elín Edda Pálsdóttir, verkefnastjóri hjá Forlaginu.

Haldið var upp á útgáfu bókarinnar Hefnd Diddu Morthens á dögunum, en útgáfuhófið var um leið verðlaunaafhending. Atli Bollason kynnti bókina fyrir hönd dómnefndar og Ragnhildur Þrastardóttir veitti viðurkenningu, en hún vann sömu keppni fyrir ári síðan. Bókarkápan er sérlega skemmtileg og gefur til kynna að bókin sé í léttum dúr enda kynnt sem fjárkúgun fyrir byrjendur.

Úr kynningartexta frá Forlaginu:

„Stundum læt ég mér detta í hug að prófa eitthvað nýtt. Ég hef verið í bókaklúbbi, stundað Zumba, gengið á fjöll og farið í sjósund. Ekkert af þessu höfðar sérstaklega til mín en það hefur verið skárra að hafa eitthvað við að vera. Eitthvað til að dreifa huganum.“

Starfsferill Diddu Morthens er að engu orðinn, börnin löngu farin að heiman og eiginmaðurinn er úrvinda öll kvöld. Hún hangir í tölvunni til að drepa tímann og dag einn býr hún til gervimenni á netinu til að hefna sín á gamalli bekkjarsystur. Atlagan heppnast svo vel að Didda ræðst í flóknari aðgerðir sem krefjast einbeitts brotavilja.

Ragna Gestsdóttir hjá DV gaf bókinni fjórar stjörnur og segir m.a. í ritdómi um bókina: "Hefnd Diddu Morthens er ekta sumarlesning, skemmtileg, meinfyndin og hæfilega spennandi."

Sigríður Pétursdóttir er komin í skáldatalið!

 

 

 

 

Tengt efni