SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Jóna Guðbjörg Torfadóttir27. maí 2025

MORÐ OG MESSUFALL - Útgáfuhóf á eftir!

Í dag verður blásið til útgáfuhófs í Eymundsson Kringlunni í tilefni af útgáfu bókarinnar Morð og messufall eftir Arndísi Þórarinsdóttur og Huldu Sigrúnu Bjarnadóttur.

Hófið hefst klukkan 16:30, léttar veitingar verða í boði, upplestur og áritanir - og vitanlega verður bókin á útgáfutilboði. Öll eru velkomin!

Bókin er kynnt svo: 

Sif hefur einföld markmið í lífinu. Hún vill bara halda foreldrum sínum á, eða að minnsta kosti nálægt, mottunni og hreppa prestsembætti svo hún geti tryggt syni sínum örugga framtíð. Fyrsta atvinnuviðtalið eftir útskriftina úr guðfræðinni endar þó með ósköpum þegar þau séra Reynir ganga fram á lík í altariströppunum. Í óðagotinu sem fylgir er Sif ráðin í tímabundið starf kirkjuvarðar og einsetur sér að sanna sig svo hún hljóti prestsvígslu í kjölfarið. En organistinn er hættur, bókhaldið í óreiðu og í ofan á lag virðist piltur úr ungmennastarfinu vera horfinn sporlaust. Hvað í ósköpunum var hinn látni, Kormákur Austfjörð, sérlegur aðstoðarmaður Reynis, að bralla á elliheimili hverfisins? Og hversu mörg boðorð er eiginlega hægt að brjóta í einni og sömu kirkjunni?