Jóna Guðbjörg Torfadóttir∙25. desember 2025
JÓLALJÓÐ II: JÓLASTJARNAN EFTIR NÍNU BJÖRK ÁRNADÓTTUR
Ljóð jóladags er eftir Nínu Björk Árnadóttur en það rataði í ljóðasafn Gylfa Gröndals, Jólaljóð, sem kom út árið 1993. Ljóðið er því ort fyrir þann tíma en brýning þess á enn mikilvægt erindi, því miður, á hátíð sem jafnan er kennd við kærleika og frið.
Jólastjarnan
Skín á himni
heimi sendir bjarma sinn
komin enn með bjarmann sinn
jólastjarnan mín og þín.
Segðu okkur enn í dag
um frelsarann sem fæddist
fæddist til að boða frið
og fæddist fyrir mig og þig.
Skín á himni
heimi sendir bjarma sinn
jólastjarnan mín og þín.
Brennur hún í austri
brennur hún af sorg.
Enn brenna í austri
ómáttugar þjóðir
brenna af sorg
brenna af kvöl
þjóðirnar í austri
brenna af kvöl.
Segðu okkur enn í dag
um frelsarann sem fæddist.
Segðu að hann komi enn
og breiði friðarfaðminn sinn
móti heimi okkar
og móti mér og þér.
Að hrópað geti allir svo sorg hennar slokkni
sorg hennar slokkni stjörnunnar okkar
,,Yður er í dag frelsari fæddur
sem er Kristur Jesús í borg Davíðs."
(Jólaljóð, bls. 74-75)

