Steinunn Inga Óttarsdóttir∙13. janúar 2026
HILDUR KNÚTS SÆMD BJARTSÝNISVERÐLAUNUNUM

Hildur Knútsdóttir rithöfundur hlýtur Íslensku bjartsýnisverðlaunin 2025. Verðlaunin eru áletraður gripur úr áli og ein og hálf milljón króna í verðlaunafé. Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, afhenti verðlaunin við hátíðlega athöfn á Kjarvalsstöðum þann 7. janúar sl. og lagði í ávarpi sínu við þetta tækifæri að bjartsýni væri meðvituð afstaða til framtíðarinnar og því drifkraftur framfara, samvinnu og nýrra lausna.
Bjartsýnisverðlaunin eru menningarverðlaun sem hafa verið afhent árlega frá árinu 1981. Þau eru í senn viðurkenning og hvatning til íslensks listamanns sem með list sinni hefur stuðlað að bjartsýnu lífsviðhorfi. Stofnað var til verðlaunanna í forsetatíð Vigdísar Finnbogadóttur af Peter Brøste hjá Brøste A/S í Kaupmannahöfn. Rio Tinto á Íslandi sem rekur álverið í Straumsvík hefur verið bakhjarl verðlaunanna frá árinu 2000. Forseti Íslands er verndari verðlaunanna.
Í rökstuðningi dómnefndar segir meðal annars:
„Hildur Knútsdóttir, bjartsýnisverðlaunahafi árið 2025, á að baki langan og fjölbreyttan feril. Á tímum þar sem lestur barna og ungmenna á í vök að verjast hefur verðlaunahafinn okkar lagt umtalsvert af mörkum og fer iðulega ótroðnar slóðir í verkum sínum. Hún er fjölhæf, hugmyndarík og afkastamikil og skrifar bæði fyrir börn og fullorðna. Það er von okkar að Bjartsýnisverðlaunin verði hvatning til hennar um að halda áfram á sömu braut, að halda áfram að skrifa áhugaverðar, heillandi og frumlegar sögur fyrir okkar mikilvægustu lesendur“ segir meðal annars í umsögn dómnefndar en hana skipuðu Þórunn Sigurðardóttir, Magnús Geir Þórðarson, Sif Gunnarsdóttir og Rannveig Rist.
Skáld.is sendir Hildi innilegar hamingjuóskir!
Mynd af vef forseti.is

