SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Soffía Auður Birgisdóttir 2. febrúar 2026

LITVINDAR BJARGAR ÖRVAR

 

Björg Örvar, myndlistarkona og skáld, sendi frá sér nýja ljóðabók í byrjun árs. Bókin nefnist Litvindar og varð til á áratug sem Björg bjó og hafði vinnustofu á Stokkseyri. Dvölin á Stokkeyri veitti henni mikinn innblástur og er hún ekki fyrsta ljóðskáldið til að heillast af þessu sjávarþorpi, en minnast mjá ljóðabókar Ísaks Harðarsons sem heitir einfaldlega Stokkseyri og kom út árið 1994.

Litvindar er önnur ljóðabók Bjargar en sú fyrri, Í sveit sem er eins og aðeins fyrir sig, kom út 1991 eða fyrir 35 árum. 1996 sendi Björg frá sér frábæra skáldsögu, Meinabörn og maríuþang: Ævintýri um ástskyldar verur og unaðstak kræðunnar sem sýnir afburða tök hennar á tungumálinu, litskrúðugt ímyndunarafl og frábæra hugmyndaauðgi. Lesa má umsögn um skáldsöguna hér á vefnum.

Það er 100 bóka forlagið, eigið forlag Bjargar, sem gefur út Litvinda og líklega koma ekki út nema 100 eintök af bókinni. Ljóðaunnendur þurfa því að hafa hraðar hendur vilji þeir næla sér í eintak af bókinni!

 

 

 

 

Tengt efni