SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Jóna Guðbjörg Torfadóttir18. febrúar 2026

KVÖLDSTUND MEÐ BIRTU, SIGURBJÖRGU OG FLEIRI SKÁLDUM

Annað kvöld býður STUTT-rannsóknastofa í smásögum og styttri textum upp á kvöldstund með smávinum. Á þessum viðburðum fjalla höfundar og þýðendur um verk sín og/eða þýðingar, ásamt því að lesa valda texta. og að þessu sinni stíga tvær skáldkonur á stokk.
 
Meginmarkmið þessara stunda er að skapa tækifæri til að kynnast ólíkum stuttum bókmenntatextum, gömlum og nýjum, hvort sem þeir kallast örsögur, smáprósar, prósaljóð eða annað. Einnig og ekki síður að njóta samveru við upplestur og umfjöllun verkanna.
 
Kvöldin eru skipulögð út frá þemum. Að þessu sinni verður efni kvöldsins: Að skrifa stutt.Gestir fá tækifæri til að bera fram spurningar og bregðast við upplestri og umfjöllun.
 
Haldið í Gunnarshús, Dyngjuvegi 8, Reykjavík, fimmtudaginn 19. febrúar kl. 20:00-21:30.
Boðið verður upp á kaffi og kleinur. Verið hjartanlega velkomin! 
 
 
Dagskrá:
Sigurbjörg Þrastardóttir: Mæður geimfara
Gyrðir Elíasson: Langbylgja 
Þórarinn Eldjárn: Dreymt bert
 
Umsjón hafa Kristín Guðrún Jónsdóttir og Ásdís R. Magnúsdóttir og má nálgast viðburðinn hér á Facebook.