LJÓÐASAMKEPPNI OG SÍÐASTI VINNINGSHAFI
Nú er opið fyrir rafræna innsendingu óútgefinna ljóðahandrita í keppnina um Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar.
Verðlaunin eru veitt ár hvert í minningu skáldsins Tómasar Guðmundssonar og hlýtur verðlaunahafi verðlaunafé að upphæð 1.000.000 krónur ásamt viðurkenningunni sjálfri. Opið verður fyrir rafræna innsendingu handrita til 1. mars 2026. Verðlaunin verða síðan veitt í októbermánuði.
Í fyrra komu verðlaunin í hlut Þórdísar Drafnar Andrésdóttur fyrir ljóðahandritið Síðasta sumar lífsins sem er vel að verðlaununum komið. Í umsögn dómnefndar kemur m.a. fram:
Síðasta sumar lífsins, er ljóðsaga sem segir frá tveimur elskendum sem eru staddir á ónefndri sólríkri eyju. Handritið er ljúfsár og tregafull lýsing á endalokum í víðum skilningi; endalokum tímans, ástarinnar, lífsins og sumarsins sem hverfur frá birtu yfir í óvissu myrkurs.
Fæst ljóðanna bera titil en hér er gripið niður í bókina þar sem segir skemmtilega frá elskendum sem deila svengdinni, kjötinu, holdinu, ástinni:


