SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Soffía Auður Birgisdóttir 3. mars 2026

LJÓÐABÆKUR JÚLÍÖNU JÓNSDÓTTUR ENDURÚTGEFNAR

 

Á fimmtudaginn kemur út bók sem hefur að geyma ljóðbækurnar tvær sem Júlíana Jónsdóttir (1838-1917) sendi frá sér, Stúlka (1876) og Hagalagðar (1916). Júlíana var fyrsta íslenska konan til að senda frá sér ljóðabók og er það fagnaðarefni að þessar tvær bækur hennar séu fáanlegar aftur. Tilefni útgáfunnar er að 150 ár eru síðan Stúlka kom út en þá var Júlíana ógift vinnukona og kostaði útgáfu bókarinnar sjálf. Mörg merkileg kvæði eru í bók Júlíönu og má til að mynda sjá hvernig hún kveðst á við karlskáldin með mótmyndum, á borð við ljóðið sem hefst á hendingunum:

 

Eldgamla Ísafold,
ófrjósöm er þín mold,
blásin og ber.
 
 
Hér er hún augljóslega að vísa í frægt kvæði Bjarna Thorarinsen, Íslands minni, þar sem hefst svona:
 
 
Eldgamla Ísafold,
ástkæra fósturmold,
fjallkonan fríð.
 
 
 
Við bendum á frábæra grein eftir Helgu Kress um Júlíönu og skáldskap hennar sem finna má hér á vefnum, og kallast ,,Stúlka án pilts. Um líf og ljóð skáldkonunnar Júlíönu Jónsdóttur, þeirrar fyrstu sem gaf út ljóðabók á Íslandi."
 
 
 
Útgáfuhóf bókarinnar Ljóðmæli: Stúlka og Hagalagðar verður haldið í bókabúð Forlagsins á Fiskislóð næstkomandi fimmtudag kl. 17.  Þar mun Gréta Sigurðardóttir, stofnandi hátíðarinnar Júlíönu í Stykkishólmi flytja ávarp, Silja Aðalsteinsdóttir lesa valin ljóð úr bókinni og Sigríður Ásta Árnadóttir spila á harmonikku fyrir gesti. Veitingar verða í boði og bókin á útgáfutilboði.

 

Tengt efni