DÍS GENGUR AFTUR
Skáldsagan Dís eftir vinkonurnar Oddnýju Sturludóttur, Silju Hauksdóttur og Birnu Önnu Björnsdóttur kom út árið 2000 og vakti strax mikla lukku. Sagan var má segja skrifuð eftir pöntun því Kristján B. Jónasson hjá Forlaginu setti sig í samband við þær og kallaði eftir verki sem þessu. Trúlega hefur haft sitt að segja að Dagbók Bridget Jones hafði slegið í gegn og fleiri skvísubækur, sem mér finnst vera ónefni, í kjölfarið.
Svo segir frá söguþræði Dísar:
Sagan gerist í menningarborginni Reykjavík, höfuðborg Íslands, sumarið 2000. Dís vinnur við gestamóttöku á Hótel Borg, leigir íbúð við Laugaveginn með frænku sinni að norðan, slær sér upp með strákum og skemmtir sér með vinunum. Hún er ein af þeim manneskjum sem ekki geta gert það upp við sig hvað þær eiga að vera og hvað þær eiga að gera. Hún er “meðalmanneskja í tilvistarkreppu” að eigin sögn og veit fátt ömurlegra en þá kröfu heimsins að þurfa að meika það á öllum sviðum og mega ekki verða hamingjusöm fyrr en þeim áfanga er náð. En nú verður stúlkan að svara því hvað hún ætli sér þegar hún verður stór … Nýstárleg, drepfyndin og leikandi létt skáldsaga um lífið á Íslandi hér og nú, full af hlýju, gleði og skilningi, en um leið háðsk úttekt á áningarstöðum aldamótakynslóðarinnar á leið sinni til frægðar og frama. Það eru vinkonur Dísar sem segja sögu hennar.

Árið 2004 var gerð bíómynd eftir sögunni og er hún nú aðgengileg í Sarpinum hjá RÚV. Nálgast má hana hér.
Hér má nálgast þáttinn Stjörnubíó þar sem Ari Eldjárn fjallar um kvikmyndina.
