KONUR SÓPA TIL SÍN VERÐLAUNUM
Storytel-verðlaunin voru afhent síðastliðið þriðjudagskvöld að afstaðinni almenningskosningu, þar sem valdar voru tilnefningar til verðlaunanna, og mati fagdómnefnda í kjölfarið. Veitt voru verðlaun í fimm flokkum og í fjórum þeirra voru höfundar, þýðendur og lesendur konur, með einni undantekningu:
-
Flokkur skáldsagna: Viðkomustaðir eftir Ásdísi Ingólfsdóttur, í lestri Valýjar Þorsteinsdóttur.
-
Flokkur barna- og ungmennabóka: Kærókeppnin eftir Emblu Backmann, í lestri Emblu og Mikaels Kaaber.
-
Flokkur glæpa- og spennusagna: Hildur eftir Satu Rämö, í þýðingu Erlu Elíasdóttur Völudóttur og lestri Sigríðar Eyrúnar Friðriksdóttur.
-
Flokkur ljúflesturs og rómantíkur: Fiðrildaherbergið eftir Lucindu Riley, í þýðingu Valgerðar Bjarnadóttur og lestri Álfrúnar Helgu Örnólfsdóttur.
-
Flokkur óskáldaðs efnis: Mennska eftir Bjarna Snæbjörnsson.