SKÁLD.IS

Konur skrifa um konur sem skrifa

Magnea Þuríður Ingvarsdóttir30. mars 2026

MANNSÆMANDI LÍF

Þankabrot dagsins er eftir Hrefnu Tynes.

Í dag er afmælisdagur Hrefnu Tynes en hún fæddist árið 1912. Hrefna var mikil skátaforingi og gengdi mörgum störfum inn þeirra hreyfingar. Þá vann hún í 10 ár hjá Æskulýðsráði Reykjavíkur, tíu ár við æskulýðsstarf þjóðkirkjunnar, á biskupsstofu í nokkur ár og sat um skeið í stjórn Hjálparstofnunar kirkjunnar. Svo lítið eitt sé talið upp.

Bandalag íslenskra skáta og Hörpuútgáfan gáfu út bókina Tendraðu ljós eftir Hrefnu þann 30. mars  árið 1992 í tilefni 80 ára afmælis hennar með ógrynni af barnaljóðum, skátasöngvum og smásögum. Hrefna var sæmd æðstu heiðursmerkjum skátahreyfingarinnar á Íslandi og sömuleiðis sæmdi forseti Íslands hana hinni íslensku Fálkaorðu. Hrefna var hugsjónakona og er öðrum góð fyrirmynd í hvívetna. Í bókinni er að finna þetta þankabrot um mannsæmandi líf. Þessi fallega hugvekja á alltaf vel við. Tölum með virðingu hvert við annað.

 
 
Mannsæmandi líf
 
Þegar árin færast yfir, fara menn almennt að gefa sér tíma til þess að hugsa dýpra og í víðari mæli heldur en áður var. Ég er ekki ein/einn í heiminum, fleiri en ég þurfa að komast að - ég má vara mig á því að vera sífellt að ná í besta bitann - fleiri en ég vilja lifa mannsæmandi lífi.
 
Já - hvað er mannsæmandi líf? Um það eru vissulega skiptar skoðanir. Sumir telja til dæmis háa þjóðfélagsstöðu, góða afkomu, glæsileika og veraldargæði það eftirsóknanlega, og góð er einnig menntun og fjármálavit. Það má deila um þetta. Menntun er góð en menntun og manngildi fylgjast ekki alltaf að. En virðing fyrir lífinu, hvar er hún í röðinni? Heiðarleiki og hlýja í annarra garð eykur alltaf á virðinguna. Virðing fyrir lífinu er alltof oft og víða á undanhaldi í mannlífinu. Ekkert heimilislíf getur verið gott nema gagnkvæm virðing ríki, svo er og um félagslíf og öll samskipti yfirleitt.
 
Við getum ekki vaðið með hnúum og hnefum í gegnum tilveruna, traðkað á öðrum og reynt að pota okkur sjálfum á toppinn. Við erum ekki alltaf sammála, en við verðum að læra að virða hvers annara skoðanir og ræða málin í bróðerni. Þetta á við á öllum sviðum mannlífsins. Það er sérkennandi fyrir stjórnmálamenn hvað þeir virðast vera að naga í hælana hver á öðrum. Blaðamenn eru oft hinir hræðilegustu tappatogarar, eins og það verði, hvað sem það kostar, að ganga fram af fólki. Allri virðingu fyrir skóla- og uppeldislífi er að fara aftur. Hvað veldur? Hver vill byrja að spyrna við fæti?
 
Manngildihugsjónin með virðingu fyrir lifinu er traust  máttarstoð mannsæmandi lífs.
 
Hrefna lést árið 1996.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Tengt efni