Soffía Auður Birgisdóttir∙ 5. apríl 2026
GLEÐILEGA PÁSKA!

PÁSKALILJUR
Morguninn eftir komu konurnar
til þess að gráta við gröfina.
Og sjá: Þær fundu gul blóm
sem höfðu sprungið út um nóttina.
Vorið var komið
þrátt fyrir allt.
(Vilborg Dagbjartsdóttir, Dvergliljur 1963)

