Vilborg Dagbjartsdóttir
Vilborg Dagbjartsdóttir fæddist á Hjalla á Vestdalseyri þann 18. júlí árið 1930.
Vilborg fór í leiklistarnám til Lárusar Pálssonar árið 1951 og var síðan í námshring Gunnars R. Hansens í leiklist frá 1952-1953.
Vilborg lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla Íslands árið 1952 og stundaði nám í bókasafnsfræðum við Háskóla Íslands 1982. Hún starfaði sem rithöfundur og ástsæll barnakennari í Austurbæjarskóla um árabil. Eftir hana liggur fjöldi rita fyrir börn, bæði sagnabækur og námsefni, auk ljóðabóka. Hún ritstýrði Óskastundinni, barnablaði Þjóðviljans, 1956 - 1962 og Kompunni, barnasíðu sunnudagsblaðs sama blaðs, frá 1975-1979.
Auk þess að skrifa bækur fyrir börn þýddi Vilborg fjölda erlendra barnabóka og starfaði ötullega að málefnum barna. Hún hlaut heiðursverðlaun IBBY á Íslandi fyrir störf sín í þágu barna.
Vilborg var einn frumkvöðla að stofnun Rauðsokkahreyfingarinnar og átti sæti fyrir miðju hreyfingarinnar 1970. Hún sat lengi í stjórn Menningar- og friðarsamtaka íslenskra kvenna. Hún átti sæti í stjórn Stéttarfélags íslenskra barnakennara, Rithöfundafélags Íslands og Rithöfundasambands Íslands. Vilborg var í stjórn Kvikmyndaklúbbsins og Litla bíós frá 1968-1970.
Fyrsta ljóðabók Vilborgar var Laufið á trjánum sem kom út árið 1960 og var hún þá ein af fáum konum sem skrifuðu módernísk ljóð. Hún birti einnig ljóð í tímaritinu Birtingi og á fjölda ljóða og greina í tímaritum og safnritum.
Ljóð Vilborgar hafa birst í erlendum safnritum og tímaritum á fjölda tungumála og um hana og verk hennar hafa verið haldin mál- og ritþing.
Vilborg var gift Þorgeiri Þorgeirsyni rithöfundi og áttu þau tvo syni.
Út komu tvær bækur um ævi Vilborgar: Mynd af konu eftir Kristínu Marju Baldursdóttur (2000) og Úr þagnarhyl eftir Þorleif Hauksson (2012).
Vilborg lést í Reykjavík 16. september 2021
Ritaskrá
- 2010 Síðdegi
- 2006 Fugl og fiskur: Ljóð og sögur handa börnum
- 2004 Fiskar hafa enga rödd
- 1996 Ljósar hendur : þrjár íslenskar skáldkonur svífa sólgeislavængjum (með Ágústínu Jónsdóttur og Þóru Jónsdóttur)
- 1994 Ótta
- 1992 Klukkan í turninum
- 1984 Bogga á Hjalla
- 1983 Sögusteinn: blandað efni fyrir börn
- 1981 Tvær sögur um tunglið
- 1981 Ljóð
- 1979 Langsum og þversum
- 1971 Kyndilmessa
- 1971 Sagan af Labba Pabbakút
- 1968 Dvergliljur
- 1965 Sögur af Alla Nalla
- 1960 Laufið á trjánum
- 1959 Alli Nalli & tunglið
Verðlaun og viðurkenningar
- 2012 Ljóðaverðlaun Guðmundar Böðvarssonar
- 2005 Heiðursverðlaun DV
- 2004 Heiðurslaun listamanna
- 2000 Heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu
- 2000 Heiðursverðlaun IBBY á Íslandi fyrir störf í þágu barna
- 1996 Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar
- 1982 Menningarverðlaun DV í bókmenntum: Ljóð
- 1976 Barnabókaverðlaun Fræðsluráðs Reykjavíkur: Hugo eftir Mariu Gripe (þýðing)
- 1971 Viðurkenning úr Rithöfundasjóði Ríkisútvarpsins
Tilnefningar
- 2011 Til Fjöruverðlaunanna fyrir Síðdegi
- 2010 Til Menningarverðlauna DV fyrir Síðdegi
- 2009 Til Grímunnar, íslensku leiklistarverðlaunanna fyrir Alla Nalla og tunglið (leikgerð Péturs Eggertz)
- 1992 Til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir Klukkuna í turninum
Þýðingar
(í vinnslu)
Þýðingar eftir Vilborgu:
- 1990 James Driscoll: Margot
- 1990 Anders Sørensen: Ævintýrið um hina undursamlegu kartöflu
- 1990 James Driscoll: Kalli
- 1990 James Driscoll: Dáti
- 1989 Astrid Lindgren: Ég vil ekki fara að hátta
- 1989 Anna Sewell/Robin McKinley: Fagri Blakkur
- 1987 Ulf Palmenfelt: Græna höndin og aðrar draugasögur
- 1985 Maria Gripe: Sesselja Agnes: Undarleg saga
- 1982 Barbro Lindgren: Dúa bangsi
- 1982 Barbro Lindgren: Dúa bíll
- 1982 Mauri Kunnas: Jólasveinninn: Sagan af jólasveininum og búálfum hans á Korvafjalli
- 1980 Astrid Lindgrein: Enn lifir Emil í Kattholti
- 1980 Helen Bannermann: Sagan af litlu hvítu Lukku
- 1979 Astrid Lindgren: Ný skammarstrik Emils í Kattholti
- 1979 Maria Gripe: Náttpabbi
- 1978 Astrid Lindgren: Emil í Kattholti
- 1977 Ulf Löfgren: Albin og undraregnhlífin
- 1977 Ulf Löfgren: Albin og furðuhjólið
- 1975 Ulf Löfgren: Albin er aldrei hræddur
- 1975 Ivo de Weerd: Benni og gæsirnar hans
- 1975 Maria Gripe: Húgó
- 1975 Ulf Löfgren: Albin hjálpar til